Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Sigurður Teitsson fær starfsmerki UMSK

10. febrúar 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

88. Siggi Teits við móttöku starfsmerkis UMSKársþing UMSK var haldið í gærkvöldi í Íþróttamiðstöðinni Laugardal.
Um áttatíu þingfulltrúar sátu þingið frá nítján aðildarfélögum. Að venju voru afhendar viðurkenningar en Sigurður Teitsson (Siggi Teits) var afhent starfsmerki UMSK sem er viðurkenning fyrir góð störf fyrir sambandið eða aðildarfélögin.

Sigurður H. Teitsson
hefur setið í aðalstjórn Harðar í fjölda ára, en auk þess að sitja í
byggingarnefnd reiðhallarinnar var hann formaður fjáröflunarnefndar
Harðar.  Sigurður hefur unnið af einurð
að þeim málefnum sem hann hefur komið að, traustur félagi sem aldrei
bregst.  Hann hefur komið árlegri fjáröflun
félagsins frá styrktaraðilum í fast horf og stuðlað þar með að öruggum rekstrargrunni
félagsins.  Hann stóð þétt við hlið
formanns þegar miklir erfiðleikar og tafir steðjuðu að reiðhallarbyggingunni og
margir aðrir brugðust, og var hornsteinninn í því að leiða það mál farsællega
til enda í miðju hruni samfélagsins. 
Eftir stendur að eiginfjárstaða Harðar er ein sú sterkasta meðal
íslenskra íþróttafélaga.

Sigurður er góður,
gegnheill maður sem skilið hefur eftir sig farsæl spor í hestaíþróttinni.

Til
hamingu Siggi okkar með þennan virðingarvott og takk fyrir samvinnuna og ómælda
vinnu þína í þágu okkar allra.

Reglugerð um heiðursveitingar UMSK 

Frétt um ársþingið