Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Jólaleikur Landsmóts og DVD diskur frá LM 2011

15. desember 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

smellið á myndina

Ó
já, jólastemningin fer að ná hámarki hér á skrifstofu Landsmóts og hér
eru mandarínur og piparkökur í öll mál. Við viljum endilega hvetja ykkur
til að taka þátt í jólaleiknum okkar og freista gæfunnar um leið og
miði á LM 2012 er keyptur á forsöluverði.

Veglegir
vinningar bíða í pottinum en allir seldir miðar fram að jólum fara
sjálfkrafa í pottinn. Athugið að á forsöluverði kostar vikupassi aðeins
10.000 krónur með LH/BÍ afslætti og N1 korts afslætti, en fullt verð er
18.000 krónur.

Á
Þorláksmessu förum við í sparifötin, fáum okkur smákökur, malt &
appelsín og drögum út heppna vinningshafa. Það er til mikils að vinna
því meðal vinninga eru flugmiðar til Evrópu með Icelandair, gjafabréf í
Kringluna, leikhúsmiðar, inneign hjá N1, Mountain Horse úlpa frá
Líflandi, hótelgisting í 2 nætur á Hilton Reykjavík Nordica og
endurgreiðsla á keyptum landsmótsmiðum.

Potturinn
bíður því stútfullur af glæsilegum vinningum sem væri ekki amalegt að
fá sem auka jólagjafir þetta árið. Smelltu þér á miðasöluvef landsmóts
svo þú eigir möguleika á vinningi!

smellið á myndina Að lokum minnir Landsmót á DVD diskana frá mótinu í
sumar á Vindheimamelum sem nú fara að koma úr framleiðslu. Gefinn
verður út annars vegar DVD með hápunktum Landsmóts og hins vegar
kynbótahross á Landsmóti. Þetta er gríðarlega mikið efni, eða rúmlega
átta klukkustundir í það heila og frábær heimild um gott mót norður í
Skagafirði í sumar. Hápunktarnir munu kosta kr. 5.000 og
kynbótadiskurinn kr. 8.000. Þarna er komin önnur hugmynd að frábærri
gjöf í jólapakka hestamannsins!

 

Vonast
er til að hægt verði að dreifa diskunum í verslanir á föstudaginn
16.desember en einnig er hægt að panta diskinn á skrifstofu LH/Landsmóts
í síma 514 4030 og fá hann sendan í póstkröfu eða greiða með
kreditkorti í gegnum síma. Diskurinn verður m.a. fáanlegur í eftirtöldum
verslunum: Lífland Lynghálsi og Akureyri, Baldvin & Þorvaldur
Selfossi, Knapinn Borgarnesi, Skagfirðingabúð Sauðárkróki, KS Varmahlíð
og Fákasport Akureyri.

 



 
Gleðileg jól!