Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar lokið

18. nóvember 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off


Æskulýðnefnd Harðar hélt uppskeruhátíð í Harðarbóli s.l. miðvikudagskvöld með pompi og prakt. Farið var yfir dagskrá vetrarins og veitt verðlaun fyrir árangur síðasta árs.



img_5967


 img_5931
Fimm stúlkur luku knapamerki 4 í ár en það voru þær: Line (kennari), Hrönn Kjartansdóttir, Fanney Pálsdóttir og Hulda B. Kolbeinsdóttir, Súsanna (kennari) Á myndina vantar: Hörpu Snorradóttur og Kristínu Hákonardóttur Við óskum stelpunum innilega til haingju með glæsilegan árangur. Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir knapamerki 2-3.


Guðjón Magnússon, formaður Harðar, heldur hér á
Æskulýðsbikarnum sem veittur var af Landssambandi hestamannafélaga til
Harðar nú nýverið. Hörður er að fá þennan bikar vegna öflugs starfs í
æskulýðsmálum félagsins.

 img_6020  
Hér er þeir knapar sem hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur á Uppskeruhátðinni.


Frá vinstri: Guðjón formaður Harðar, Mestu framfarir á almennu
reiðnámskeiði hlaut í barnaflokki Hrönn Gunnarsdóttir, efnilegasti
knapinn í barnaflokki var Anton Hugi Kjartansson og Harpa Sigríður
Bjarnadóttir hreppti tvo titla í ár en hún var besti knapinn og sýndi
mestu framfarir á keppninsámskeiði í barnaflokki. Besti knapinn í
unglingaflokki er Súsanna Katarína Guðmundsdóttir. Efnilegasti knapinn í
ungmennaflokki er María Gyða Pétursdóttir, mestu framfarir á
keppnisnámskeiði í ungmennaflokki er Bjarney Rósa Sveinbjörnsdóttir,
besti knapinn í ungmennaflokki er
Hildur Kristín Hallgrímsdóttir, mestu
framfarir á keppnisnámskeiði á unglingaflokki er Lilja Dís
Kristjánsdóttir, efnilegasti knapinn í ungmennaflokki er Hinrik Ragnar
Helgasson. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju.



 

Æskulýðsnefnd Harðar þakkar fyrir ánægjulega kvöldstund og hlakkar til að vinna með ykkur öllum í vetur.