Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Hefur þú tíma aflögu til að vinna í frábæru umhverfi með frábæru fólki?

6. september 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Smellið á myndina til að sjá auglýsinguna í pdfSjálfboðaliðar óskast til að vinna á reiðnámskeiði fyrir
fötluð börn- og ungmenni hjá Hestamannafélaginu Herði í vetur.

Námskeiðin verða alls fjögur fram að áramótum og
kennt er 1 sinni í viku á mánudögum frá kl. 14:45 – 15:45 og  1 sinni í viku á föstudögum frá kl. 14:45 –
15:45. Hvert námskeið eru 5 skipti í senn. Kennt er í reiðhöll Harðar í
Mosfellsbæ. Námskeiðin byrja mánudaginn 19.september 2011.

Verkahringur sjálfboðaliða er margvíslegur en felst aðallega í því að
hjálpa til við að undibúa krakkana áður en þau fara á bak, Aðstoða við að teyma
hestana undir þeim eða ganga með þeim sem þurfa. Starfið er ótrúlega
skemmtilegt og gefandi og þó sérstaklega fyrir þá sem hafa gaman af því að
umgangast hesta og vera í þessu umhverfi. Aldur er nokkurn veginn afstæður,
allt frá unglingsaldri og upp í eldri borgara sem myndu langa til að lífga upp
á vikuna og fá sér smá göngurækt í leiðinni í skemmtilegu umhverfi .

Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á að taka þátt í
skemmtilegu verkefni í vetur.

Netfang; audurs@gmail.com

Sími: 898-6017/899-7299

Fræðslunefnd fatlaðra