Ákveðið var á síðasta stjórnarfundi að ráða starfsmann stjórnar, en það er löngu orðið tímabært. Starfið nær yfir breitt verksvið, daglegan rekstur reiðhallarinnar og félagsheimilis, innheimtur, bókhald, umsjón með félagatali, umsjón með losunarsvæði Harðar, þjónustu við nefndir félagsins o.fl.o.fl. Ákveðið var að ráða Rögnu Rósu Bjarkadóttur í starfið. Síminn hjá henni er 8663961 og netfangið ragnaros@simnet.is.
Guðmundur Björgvinsson og kvennadeildin munu
áfram sjá um félagsatburði í Harðarbóli sem fyrr, Rósa sér áfram um
útleiguna og ræstingu og allar nefndir félagsins halda óbreyttu striki
en geta kallað Rögnu Rós til aðstoðar þegar þörf er á.
Ragna Rós er rekstrarstjóri félagsins og starfar
beint fyrir aðalstjórn. Við vonum að þetta eigi eftir að skila sér í
enn betra utanumhaldi um félagsstarfið og er hugsað sem hrein viðbót við
það sem fyrir er, því að sjálfsögðu höldum við stjórnar- og nefndarmenn
áfram að vinna fyrir félagið af sama krafti og áður.
Nýr starfsmaður hjá Herði

Við bjóðum Rögnu Rós velkomna til starfa.
Kveðja Guðjón formaður
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn