Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Kveðja frá Önnu Björk formannsfrú

22. maí 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Sælar allar Formannsfrúarreiðkonur,  mikið var dagurinn frábær, er enn að fara yfir
hann í huganum.  Allt sem við upplifðum saman
í ólýsanlegu veðri í frábærum hóp undir óskeikulli fararstjórn Lillu.  Hugsið ykkur allt sem hefði getað gerst, en
gerðist ekki af því að hópurinn var einhuga um að láta allt ganga upp,
viðvaranir við pyttum, drullu, halla eða annarri torfæru  kallaðar aftur íhópinn og látið ganga,
(stökkbreyttist stundum í eitthvað annað ;-O eftir því sem það ferðaðist  aftur í hópinn).  Hjálpin sem 
við fengum á leiðinni frá eiginmönnum og öðrum aðdáendum var


ómetanleg.  Rosalega fegnar að þurfa ekki að nýta okkur  sérfæði þjónustu okkar ágæta Ingvars læknis
sem kom þó til að tékka á sinni, eða Helga dýra, sem átti þó fleiri í hópnum.  Óvæntar uppákomur eins og að Helgi Björnsson
aðal  söngvari hestamanna skyldi fara
uppá bílpall á Skeggjastöðum  og taka
lagið fyrir okkur.  Stórbrotið  landslagið,  náttúrufegurði á leiðinni, kyrrðin og yndisleg
sól.  Allar kappklæddar tilbúnar í allt
nema það sem kom, hahaha, skrældum af okkur lögin eins og við værum laukar, peysur
fuku, vettlingar og  göllum pakkað saman
og hefðum gefið mikið fyrir að stinga hausnum undir kalda bunu af vatni.  Persónuleg markmið sett og kláruð með glans.  Þreyttar en í sæluvímu komum við í hús.  Harðarból 
hafði  orðið fyrir sprota álfdrottningarinnar
Gunnu í Dalsgarði,  óþekkjanlegt,  í nýja glæsilega búningnum sem hún færði hann
í.  Maturinn frábær,  Makkerinn og 
Ragga sáu um að enginn var þyrstur eða þurfandi fyrir neitt.  Gítarspilið hjá Guðjóni  formanni  og Hákoni setti svo lokapunktinn á
hátíðina. 

Takk allir fyrir að láta þessa litlu hugmynd sem ég fékk í
vetur  verða að þessum yndislega  veruleika, sem ég ætla að ylja mér á í huganun
lengi,

TAKK FYRIR MIG,  Anna
Björk