Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Minnispunktar f. Formannsfrúarreið 21. mai 2011

18. maí 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hér eru helstu atriði sem var farið yfir á fundinum í gærkvöldi vegna ferðarinnar:

ATHUGA VEL JÁRNINGAR Á HESTUM

Það
er gott að gefa hestunum vel að éta kvöldinu áður og snemma að morgni
ferðadags (5-6 um morguninn) svo þeir séu vel étnir því það er engin
beit á leiðinni.  Áður en konur mæta í morgunverð í Harðarbóli kl. 7.30
setja þær ferðahesta útí gerði með merkta múla, RAUTT tape í faxi þess
hests sem fer alla leið á Skógarhóla, HVÍTT í þá sem koma seinna í
Kjósaskarð.  ÖLL reiðtygi  (NEMA HNAKKTASKA) og auka hlífðarföt í poka
eða tösku við gerðið, það verður sótt á meðan við erum að borða.  Við
erum allar útivistarkonur og kunnum að klæða okkur eftir veðrinu, sem
getur verið ansi fjölbreytt yfir einn dag, en mig langar að

að fara yfir
það helsta:  Hlý ullarnærföt, lopapeysan okkar,  húfa undir hjálminn,
hlýir vettlingar og auka til skiptanna af það blotnar jafnvel auka
sokka,  góð úlpa og skálmar,  regngalli, varasalvi f. konu og hest,
hestanammi til að gefa besta vininum okkar á áningastað, SECOND SKIN
getur komið sér vel.  Það sem þarf að vera í hnakktöskunni er gott
nesti, megrun og mataraðhald á ekki við á ferðadag, við þurfum orku,
vatnsflaska, baggabönd, skeifa, wc pappír og lítill peli með einhverju
sem hlýjar ef okkur verður kalt. 

Það er mikilvægt að hver kona
hugsi fyrir öllu sem hún þarf fyrir ferðina og sé sjálfbær.  Eins og við
töluðum um á fundinum er Lilla fararstjóri og stjórnar reiðinni, ríður
fremst og við fylgjum 3-4 hestlengdum á eftir henni.  Hún ræður hvar er
áð og hvað lengi.  Þegar við áum er mikilvægt að huga strax að hesti og
reiðtygjum, pissa, borða og gera klárt það sem þarf að laga áður en lagt
er af stað næst, og slappa svo af, þangað til Lilla kallar JÆJA, því
næsta kall verður HNAKKUR, þá þurfa allar konur að stíga á bak, það er
frekar tillitslaust að láta 35 mannas bíða eftir sér.  Þetta er allt
okkur til þæginda svo við komum til baka á þokkalegum tíma því leiðin er
39.5 km og við viljum ekki vera lengur en 6-8 tíma. Ég vona að ég hafi
ekki gleymt einhverju mikilvægu ef svo er endilega láti mig vita.  Ég
ætla að setja inn ferðahnitin frá Lillu hér fyrir neðan.

Hlakka svo mikið til að fara þessa leið með ykkur öllum, GÓÐA FERÐ 😉  KOMUM HEILA OG GLAÐAR HEIM


 Bestu kveðjur, Anna Björk, 894-5103

 

Skógarhólar               Brúsastaðir       5.2 km         Aðrar leiðir tilviðmiðunar:

Brúsastaðir                Einiberjaflöt      3.2 km         Blikastaðahringur          6.6 km

Einiberjaflöt               Selkot               3.8km         Flugvallahringur            3.5 km

Selkot                       Kjósaskarð        5.9 km        Hörður-Laxnes-Hörður  13.0 km

Kjósaskarð                  Stardalur         5.0 km        Mosefllsdalur hringur   14.0 km 

Stardalur                   Skeggjastaðir    4.3 km        Hörður-Fákur um

Skeggjastaðir             Víðioddi            5.8 km         Korpúlfst-Hörður         25.6 km

Víðioddi                     Hörður              3.0 km