Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Fjölskyldustemning á stórsýningu Hestadaga

1. apríl 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

hestadagar 2011

Föstudagskvöldið 1.apríl kl 20:00 blása hestamannafélögin
á höfuðborgarsvæðinu í lúðra og sameinast um að halda fjölskylduvæna og
hressilega sýningu í Reiðhöllinni í Víðidal, þar sem fjölbreytt skemmtun verður
í boði og að sjálfsögðu verður íslenski hesturinn í aðalhlutverki. Gestir munu
fá að fylgjast með börnum og unglingum sýna gæðinga sýna með stolti, ungmenni
og fullorðnir sýna bæði klárhross og alhliðahross og að auki fá gestir innsýn í
hluta af menntakerfi hestamanna, nefnilega Knapamerkin.


Einnig munum við fá
sólóatriði frá heimsmeistaranum Guðmundi Einarssyni og syngjandi flott
lokaatriði. Til að poppa enn frekar upp stemninguna í höllinni, ætla þeir Halli
og Heiðar í Botnleðju að mæta með Pollapönk í farteskinu og spila og skemmta
áhorfendum af sinni alkunnu snilld.

Miðaverð er einungis kr. 1000 og frítt fyrir 13 ára og
yngri.

Missið ekki af þessu, sjáumst í Reiðhöllinni í Víðidal!