Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Hestadagar í Reykjavík rétt handan við hornið

24. mars 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestadagar 2011

Nú fer að líða að því að Hestadagar í
Reykjavík fari að hefjast.  Um helgina
verður nóg um að vera.  Laugardaginn
næskomandi  mun reiðskólinn Íslenski
hesturinn sjá um hestateymingar á Ingólfstorgi milli 14 og 15, Orrasýning í
Ölfushöllinni, og á sunnudaginn er KvennaLífstölt hjá hestamannafélaginu Herði
í Mosfellsbæ og allur ágóði af mótinu mun renna til Lífs (kvennadeild
Landsspítlans).

Hér að neðan má sjá dagskrá Hestadaga í
Reykjavík , einnig má finna allar upplýsinga  um viðburðina og kaupa miða í ferðirnar og
sýningar á heimasíðu hestadaga sem er www.hestadagar.is
eða í síma 514-4030.


MÁNUDAGUR 28 MARS 

Kynbótaferð á Suðurland, heimsótt verða tvö ræktunarbú
sem valin hafa verið þau bestu undanfarin ár. Búin munu sýna brot af því besta
úr sinni ræktun. Farið verður frá BSÍ kl: 10.00, síðasti dagur bókunnar er
25. mars. verð kr: 5000

ÞRIÐJUDAGUR 29 MARS


Kynbótaferð á Vesturland, heimsóttur verður Landbúanaðarháskólinn á Hvanneyri
og Miðfossum. Kennslusýning í samvinnu við Hvanneyraskóla,
kynbótadómarar með fræðsluerindi og útskýringar á helstu atriðum
kynbótadóma og ræktunar. Ræktunarbú á Vesturlandi sýna brot af því
besta. Farið verður frá BSÍ kl: 9.30. Síðasti dagur bókunnar er 26.
mars. Verð kr: 5500

MIÐVIKUDAGUR 30 MARS


Félag tamningamanna verður með sýnikennslu í Reiðhöll Gusts- Glaðheimum .


Byrjar kl. 20.00, verð kr: 1500

FIMMTUDAGUR 31 MARS


Landbúnaðarháskólinn á Hólum verður með kynningu í  Reiðhöll hestamannfélagsins
Harðar í Mosfellsbæ. kl. 17:00 aðgangur ókeypis

FIMMTUDAGSKVÖLD: Sölusýning í reiðhöll Harðar, hestar til sölu, þjóðleg stemmning og margt
skemmtilegt að sjá. Ekki missa af þessu. Aðgangur ókeypis, byrjar kl
20.00.

FÖSTUDAGUR 1 APRÍL

Hestahátíð í Hafnarfirði, heimsóknir með hesta á
leikskólana í Hafnarfirði. Þórsplan- hestar til sýnis, söngur gleði og
gaman. Hópreið að Fjarðarkaupum þar sem verður lítil hestasýning á bílaplaninu,
milli kl. 16- 18. 

FÖSTUDAGSKVÖLD:
Stór sýning í reiðhöllinni í Víðidal. Að sýningunni koma þau sex
hestamannafélög á höfuðborgarsvæðinu sem hafa lagt mikla vinnu í dagskrá
Hestadaga í Reykjavík. Unglingarnir í félögunum munu einnig verða með í þessari
sýningu. Blönduð og skemmtileg sýning þar sem allir ættu að geta skemmt sér
vel. Sýningin hefst kl.20:00, 


verð kr: 1000 og frítt fyrir 13 ára og yngri.

LAUGARDAGUR 2 APRÍL

STÓRI DAGURINN!


Skrúðganga fer frá BSÍ í kringum hádegi og riðið verður upp
Laugarveginn og endar gangan í Fjölskyldu og húsdýragarðinum. Þar verður
fjölskylduhátíðin "GOBBIDÍ GOBB"


Frá kl: 13.00 – 16.00. Margt skemmtilegt verður þar fyrir alla fjölskylduna,
hestateymingar, markaðsþorp, sögusýning og margt, margt fleira. Aðgangur er
ókeypis.

LAUGARDAGSKVÖLD:


"ÞEIR ALLRA STERKUSTU" ÍSTÖLTSKEPPNI í Skautahöllinni í
Laugardalnum.


Þar mæta til leiks allra bestu hestar og knapar landsins. Viðburður sem ekki má
missa af. Keppnin hefst kl 20.00 verð kr. 3000