Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

LÍFStöltið

21. mars 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

LÍFStöltið Mótið verður haldið í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ þann 27. mars kl 10. Skráning verður í Harðarbóli miðvikudaginn 23. mars á milli kl. 19 og 22 og í síma 566 8282.


Skráningargjöld eru frjáls framlög, þó að lágmarki kr.1000


Keppt verður í 4 flokkum:

  • Byrjendur
  • Minna vanar
  • Meira vanar
  • Opinn flokkur


Verðlaun eru í formi peningagjafa sem renna beint til LÍFS. Aðgangseyrir er frjáls og rennur til LÍFS en lágmark er kr. 500.


Kvenskörungurinn Sigga Kling opnar mótið og leiðir skrautreið til heiðurs konum.

Brjóstamjólkurreið


Ekki missa af þeim Audda, Gillz, Steinda Jr, Sveppa og Villa Naglbít
keppa um hver er í besta jafnvægi og er fyrstur í mark á hestbaki
með könnu fulla af brjóstamjólk. Hanga þeir á baki 3 hringi í höllinni?


Allar skvísur í hnakkinn og töltum til styrktar LÍFI!Hestamannafélagið Hörður


www.hordur.is
lifstyrktarfelag


www.gefdulif.is 


www.facebook.com/hordur/