Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Námskeið: Hæfileikar hrossa

9. mars 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

 – Endurmenntun LbhÍ býður fram námskeið í kynbótadómum í samstarf við
Hrossaræktarsamtök Suðurlands.

Markmið: Markmið með námskeiðinu er að nemendur fræðist um hæfileika hrossa. Farið
verður yfir dómkvarðann og hross skoðuð í reið. Hver gangtegund verður tekin
fyrir og þeir þættir sem horft er til þegar hún er metin. Vilji og geðslag og
fegurð í reið eru tekin fyrir á sama hátt. Námskeiðið byggist á sýnikennslu og
fyrirlestrum þar sem hross af ýmsum toga verða notuð sem dæmi.
 Hámarksfjöldi þátttakenda 23.

Kennarar: Eyþór Einarsson og Valberg Sigfússon, kynbótadómarar.

Stund og staður:  Sun. 13. mars, kl.
9:30 – 16:30 (8,5 kennslustundir), Harðarhöllin í Mosfellsbæ

Verð: 15.000 kr fyrir  félagsmenn innan Hrossaræktarsamtaka Suðurlands, en
20.000 kr fyrir utanfélagsmenn.

(Bent er á að hægt er að sækja um aðild að HS að uppfylltum félagslögum
þess, sjá heimasíðu samtakanna http://www.bssl.is/
Skuldlausir
félagsmenn árið 2010 njóta afsláttarins.)

Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla
Íslands á endurmenntun@lbhi.is
eða í síma 433 5000/843 5302 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími. Auk
þess hvort viðkomandi er félagsmaður HS).

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf
skráningu með því að millifæra 3.500 kr (óafturkræft) á reikninginn
0354-26-4237, kt. 411204-3590 og senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is