Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Smalamót Harðar

31. janúar 2011 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Laugardaginn  5.
Febrúar kl. 13.00 verður smalamót Harðar haldið í Harðarreiðhöllinni.  Þetta verður stórhátíð, enda mótið
einstaklega skemmtilegt og áhorfendavænt. 
Í stuttu máli fer það þannig fram að sett verður upp þrautabraut í
reiðhöllinni og sá sem ríður hana hraðast vinnur.  Refsistig eru gefin ef hlutar brautarinnar
eru felldir.  Þetta er góðgerðarmót og
rennur öll innkoman til krabbameinssjúkra barna.  Það eru þær Súsanna Katarína og Harpa
Sigríður sem eiga hugmyndina að mótinu, stilla því upp og smíða
verðlaunagripi.  Öll vinna við mótið
verður í sjálfboðavinnu.  Við kvetjum
alla Mosfellinga til að mæta í reiðhöllina þennan dag,  horfa á frábæra skemmtun og styrkja gott
málefni.