AFS skiptinema samtökin höfðu samband og báðu okkur að kynna starfsemina þar sem óvenju margir erlendir krakkar hafa óskað eftir að komast á heimili hjá hestafjölskyldum.
Opnaðu heimili þitt og taktu
á móti skiptinema AFS!
AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök
sem starfa í öllum heimsálfum. Aðalviðfangsefni samtakanna hér á landi er
nemendaskipti unglinga á aldrinum 15-18 ára. Samtökin eru óháð
stjórnmálaflokkum og trúfélögum
sem og hvers konar hagsmunasamtökum. Markmið AFS eru að auka kynni og skilning milli þjóða heims og fólks
af ólíkum uppruna, víkka sjóndeildarhring ungs fólks og auka menntun þess.
Fósturfjölskyldur
gera starf AFS mögulegt
Á hverju ári taka 10.000 fósturfjölskyldur, í 54 löndum þar
sem AFS starfar, á móti
skiptinemum.AFS á
Íslandi hefur áratuga reynslu af nemendaskiptum þar sem samtökin hafa starfað í
rúmlega 50 ár og fleiri þúsund skiptinemar og fósturfjölskyldur hafa tekið þátt
í starfsemi AFS.
Í ágúst á þessu ári
koma til landsins 26 erlendir skiptinemar á vegum AFS samtakanna og verða hér á
landi í 10 mánuði. Erlendu nemarnir eiga það sammerkt að hafa áhuga á að koma
til Íslands og að vilja kynnast íslenskri menningu, náttúru og fjölskyldulífi. Þetta
árið hafa okkur borist óvenju margar umsóknir frá nemum sem mikinn áhuga hafa
áhestamennsku og/eða eru miklir
aðdáendur íslenska hestsins.
Fólk sem hefur áhuga á fólki og löngun til þess að kynnast
veröldinni á að grípa tækifærið og taka að sér skiptinema.
Fósturfjölskyldur
geta verið:
· Stórar eða litlar
· Ungar eða gamlar
· Hjón með börn á mismunandi aldri
· Barnlaus hjón
· Einstætt foreldri
· Fjölskyldan getur búið í bæ eða sveit
Allt sem þið þurfið er hjartarými, löngun til að læra
eitthvað nýtt, kímnigáfuog
sveigjanleika.
Þeir sem hafa áhuga á nánari upplýsingum geta haft samband
við skrifstofu AFS á Íslandi í síma: 552-5450 eða kíkt inn á heimasíðu okkar: www.afs.is
Skiptinemar til Íslands á vegum AFS
AFS skiptinema samtökin höfðu samband og báðu okkur að kynna starfsemina þar sem óvenju margir erlendir krakkar hafa óskað eftir að komast á heimili hjá hestafjölskyldum.
Opnaðu heimili þitt og taktu
á móti skiptinema AFS!
AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök
sem starfa í öllum heimsálfum. Aðalviðfangsefni samtakanna hér á landi er
nemendaskipti unglinga á aldrinum 15-18 ára. Samtökin eru óháð
stjórnmálaflokkum og trúfélögum
sem og hvers konar hagsmunasamtökum. Markmið AFS eru að auka kynni og skilning milli þjóða heims og fólks
af ólíkum uppruna, víkka sjóndeildarhring ungs fólks og auka menntun þess.
Fósturfjölskyldur
gera starf AFS mögulegt
Á hverju ári taka 10.000 fósturfjölskyldur, í 54 löndum þar
sem AFS starfar, á móti
skiptinemum. AFS á
Íslandi hefur áratuga reynslu af nemendaskiptum þar sem samtökin hafa starfað í
rúmlega 50 ár og fleiri þúsund skiptinemar og fósturfjölskyldur hafa tekið þátt
í starfsemi AFS.
Í ágúst á þessu ári
koma til landsins 26 erlendir skiptinemar á vegum AFS samtakanna og verða hér á
landi í 10 mánuði. Erlendu nemarnir eiga það sammerkt að hafa áhuga á að koma
til Íslands og að vilja kynnast íslenskri menningu, náttúru og fjölskyldulífi. Þetta
árið hafa okkur borist óvenju margar umsóknir frá nemum sem mikinn áhuga hafa
á hestamennsku og/eða eru miklir
aðdáendur íslenska hestsins.
Fólk sem hefur áhuga á fólki og löngun til þess að kynnast
veröldinni á að grípa tækifærið og taka að sér skiptinema.
Fósturfjölskyldur
geta verið:
·
Stórar eða litlar
·
Ungar eða gamlar
·
Hjón með börn á mismunandi aldri
·
Barnlaus hjón
·
Einstætt
foreldri
·
Fjölskyldan getur búið í bæ eða sveit
Allt sem þið þurfið er hjartarými, löngun til að læra
eitthvað nýtt, kímnigáfu og
sveigjanleika.
Þeir sem hafa áhuga á nánari upplýsingum geta haft samband
við skrifstofu AFS á Íslandi í síma: 552-5450 eða kíkt inn á heimasíðu okkar: www.afs.is
Með bestu kveðjum,
starfsfólk AFS
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn