Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Reiðleið um Hellisheiði

2. júní 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Reiðleiðir um Hellisheiði Séu einhverjir hestamenn á höfuðborgarsvæðinu svo lánsamir að vera með fullfrísk hross og hyggja á sleppitúra á næstunni þ.e. um Hellisheiði þá eru nokkur atriði að varast. Framkvæmdum við Hellisheiðarvirkjun og Hellisheiðaræð hefur tafist frá því sem upphaflega var áætlað. Framkvæmdum við virkjunina lýkur 2011, en við Hellisheiðaræð í ág. – sept. 2010.

Vegna framkvæmda getur verið erfitt að fara um
Hellisskarð og milli hrauns og hlíðar, sérstaklega á það við um
tímabilið 6. – 26. júní en þá verða allar borholur á svæðinu látnar
blása. Auðveldast verður að fara gömlu reiðleiðina, þ.e. upp hjá
Fossvallarétt og Sandskeiði, hjá Litlu kaffistofunni að
Hellisheiðarvirkjun og þaðan reiðleiðina upp hjá Skíðaskálanum í
Hveradölum. (Smellið á myndina til að stækka hana)

Best er að kanna stöðu framkvæmda hverju sinni á http://www.or.is eða í
gestamóttöku Hellisheiðavirkjunnar sími 516 7508.

Góða ferð,
Samgöngunefnd LH og Reiðveganefnd SV-svæðis