Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Beitarmál

21. maí 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Nú er sá tími árs sem beitarnefnd félagsins fer yfir
beitarmálin og úthlutar beit á þeim beitarstykkjum sem hestamannafélagið hefur
til umráða til félagsmanna.  Reglurnar
eru þannig að beit er úthlutað til eins árs í senn, það hefur þó verið
vinnuregla til langs tíma að reyna að leigja sömu einstaklingum sömu
beitarstykkin frá ári til árs. Þannig hefur fólk getað komið sér fyrir, lagað,
sett upp girðingar og gengið að því frá ári til árs. 

Þegar fólk hefur af einhverjum sökum þurft að
fara af stykkjunum, (hætta í hestamennsku, flytja úr bæjarfélaginu, stykkið
tekið undir byggingar eða annað) hefur hestamannafélagið séð til þess að þær
fjárfestingar sem fólk hefur lagt í séu keyptar upp að frádregnum eðlilegum
afskriftum.  Það er því ekki um neinn
hefðarrétt, áunninn eignarrétt eða erfðarrétt að ræða.  Um þetta fyrirkomulag hefur verið tiltölulega
góð sátt í gegnum tíðina.  Það er þó ljóst að

beitarstykkin eru takmörkuð
auðlind, sérstaklega þau stykki sem næst eru hesthúsahverfinu og félögum í
hestamannafélaginu fjölgar frá ári til árs. 
Það var því fyrir fimm árum að aðalstjórn félagsins fór yfir beitarmálin
í heild sinni.  Þá var ákveðið að reyna
að nýta þau stykki sem næst eru hesthúsahverfinu betur, eða skipta upp þeim
stykkjum sem þyldu meiri beit, en jafnframt að fækka hestum ef einhverstaðar
reyndist vera ofbeitt.  Hlutlaus aðili
tekur út öll beitarstykki Harðar árlega og leggur mat á hvort hæfilega sé
beitt.   

Það er langt frá því að núverandi fyrirkomulag
þurfi að vera það eina rétta, þegar farið var yfir þessi mál komu fram margar
tillögur að fyrirkomulagi.  Ein var sú að
Hörður keypti upp og sæi um allar girðingar og síðan yrði dregið úr umsóknum
hver fengi hvert stykki til árs í senn (lýðræðislegt og félagslega réttlátt
fyrirkomulag sem tryggði jafnan rétt félagsmanna hvort sem þeir væru gamlir eða
nýir félagsmenn). 

Önnur tillagan var sú
að halda árlegt uppboð á stykkjunum, þá yrðu eftirsóttustu stykkin dýrust og
önnur ódýrari.  Þriðja tillagan var að
verðleggja stykkin misjafnlega þannig að þeir sem kysu að vera næst
hesthúsahverfinu greiddu aukalega fyrir þau fríðindi.  Niðurstaðan fyrir fimm árum var hins vegar sú
að búa við það fyrirkomulag sem hefur verið að mestu leiti óbreytt, en þó væri
nauðsynlegt að aðlaga útleiguna að breyttum tímum þar sem beitarstykkjum fækkar
en félagsmönnum fjölgar.  Það var líka
ákveðið að fara ekki í þetta með látum, heldur reyna að gefa beitarnefnd og
leigjendum nokkurra ára aðlögunartíma og yrði sá tími nýttur til að laga til
eftir því sem hægt væri og helst að nota tækifærið til breytinga þegar fólk
þyrfti að flytja sig til eða hætti. Það eru ekki alltaf vinsælar ákvarðanir sem
beitarnefnd félagsins þarf að taka og ekki eftirsóknarvert að vera í stöðu
nefndarmanna þegar þær eru teknar.

Félagsmönnum er að sjálfsögðu fullkomlega heimilt að vísa málum til
aðalstjórnar telji þeir á rétt sinn gengin af nefndum félagsins, einnig má benda á aðalfundi sem vetvang fyrir skoðanaskipti og umræður.  Félagsmönnum er að sjálfsögðu einnig  heimilt að leita til annarra
stofnanna æðri félaginu svo sem bæjarstjórn, eins og einn félagsmaður hótaði
mér í gærkvöldi.  Einnig má benda á
umboðsmanns Alþingis eða mannréttindadómstólinn í Haag.  En þangað til úrskurður einhvers æðra
yfirvalds krefst annars þá mun beitarnefnd Harðar, í umboði aðalstjórnar,
uppfylla þá skildu sína að úthluta beitarstykkjum til félagsmanna til eins árs
í senn eftir þeim reglum sem gilt hafa í félaginu um árabil. 

Ég er formaður félagsins og hjá mér stoppar
peningurinn.  Það hafa ekki verið margar
kvartanirnar sem ég hef fengið frá félagsmönnum þau bráðum þrjú ár sem ég hef
verið formaður, og ef kvartanir berast þá tek ég á þeim eigi þær við rök að
styðjast, enda hef ég oft heyrt að samhugurinn og friðurinn sem hér ríkir um
flest málefni séu öðrum íþróttafélögum öfundarefni.  Ég tek því glaður á móti kvörtunum frá
félagsmönnum (og/eða hótunum eins og gerðist í gærkvöldi) og reyni að leysa úr
þeim ágreiningsefnum sem upp kunna að koma ef ég get, eða vísa þeim í réttan
farveg geti ég, nefndir félagsins eða aðalstjórn félagsins ekki leyst þau.  Síminn minn er 894 5101 eins og fram kemur á
heimasíðunni og hvet ég Harðarfélaga til að hafa samband við mig ef þeim liggur
eitthvað á hjarta.  Hótunum og óeðlilegum
yfirgangi tek ég þó aðeins við í þessu númeri á eðlilegum símatíma, ekki í
heimasímann klukkan hálf tíu á kvöldin.  Annars er, grínlaust, algjörlega óviðunandi að nefndar og/eða stjórnarmenn sem eru að vinna sín störf í sjálfboðavinnu fyrir félagið af bestu samvisku sitji undir hótunum.

Með bestu kveðju, Guðjón Magnússon formaður