Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Börn, unglingar og ungmenni í Herði!

19. maí 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

thumb_reynirNú gleymum við hestapestum og öðru fári um stund og höldum í skemmti- og fræðsluferð um Suðurland. Næstkomandi laugardag ætlum við að bjóða ykkur að komast burt úr bænum. Ferðinni er heitið á nokkur hestabú, þar sem við munum kynna okkur þjálfun og undirbúning hesta fyrir keppni. Við ætlum svo að enda förina í félagsheimilinu okkar þar sem við borðum saman og gerum eitthvað skemmtilegt.

Farið verður af stað kl 10 á laugardagsmorgun og áætlað
að koma til baka milli 17 og 18. Ferðin kostar ekkert og er ætluð þeim
krökkum sem hafa verið á keppnisnámskeiðinu hjá okkur í vetur og auk
þess eru allir aðrir krakkar í Herði á þeim aldri sem áhuga hafa á
þjálfun og keppni boðin velkomin. Vinsamlegast hafið samband við
Ingimund í síma 8971036 eða breidafit@isholf.is til að tilkynna
þátttöku.

Kv Æskulýðsnefndin