Nú er að koma helgi og eru tveir viðburðir á vegum hestamannafélagsins, fjárborgarreiðin á laugardag og kirkjureiðin á sunnudag. Og þá er spurningin, í ljósi þeirrar óvissu sem ríkir vegna veikinnar, hvort við eigum að hætta við þessa viðburði.
Í tilefni af þessu átti ég samtal við Gunnar héraðsdýralækninn okkar og var niðurstaðan úr því samtali að hætta ekki við viðburðina að öllu óbreyttu, en brýna fyrir fólki að fara ekki á hestum sem sýna minnstu einkenni veikinnar, þ.e. hor eða merki um hortauma í nös, hósti, slappleiki, hiti eða einkenni um vanlíðan í reið. Hestar hafa mælst með hita þó önnur einkenni sjáist ekki, en auðvelt er að mæla hesta, hitastigið á að vera milli 37 og 38 gr, eða svipað og í okkur mannfólkinu.
Ég get sagt fyrir mitt leiti að allir 8 hestarnir í okkar húsi hafa
sýkst, en þó hafa ekki nema 2 hóstað lítillega. Þegar við urðum vör við
fyrstu einkennin, smá hortaumar, þá settum við teppi á hestana til að
byrja með og hvíldum þá alla í viku tíma. Tveir hestana voru
einkennalausir eftir tæpa viku og fórum við þá að þjálfa þá varlega.
Þeim hefur ekki slegið niður (ekki ennþá allavega), og í morgun sá ég
engin einkenni í okkar hestum lengur, en það er komið á 3 viku síðan
þeir veiktust. Ég hef heyrt fleiri áþekk dæmi, þannig að lykillinn að
þessu virðist vera sá að gefa hestunum frí um leið og fyrstu einkenni
sýkingar sjást.
Hér verður því hver og einn að meta sína hesta fyrir sig, og ef einhver
vafi er á, þá láta dýralækni skoða hestinn áður en lagt er af stað.
Þeir sem ekki eru ríðandi mæta að sjálfsögðu í kirkjureið á bíl og í
kaffið á eftir, látum þetta ekki skemma stemninguna meira en nauðsynlegt
er.
Hóstinn, hvað gerum við um helgina
Kæru félagar

Kveðja, Guðjón
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn