Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Hlustaðu á sönginn

23. apríl 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hinn frábæri kór söngelskra hestamanna og
hestaunnenda, Brokkkórinn, heldur tónleika laugardaginn 24. apríl n.k.
ásamt Borgarkórnum og Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsóknar.
Tónleikarnir eru í Fella- og Hólakirkju og hefjast kl. 17.  Stjórnendur
kóranna eru Magnús Kjartansson og Gróa Hreinsdóttir. Aðgangseyrir
aðeins kr. 1.000 (frítt fyrir 12 ára og yngri). Allir velkomnir.