Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Tilkynning frá Matvælastofnun

18. mars 2010 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Sláturhúsum er óheimilt að taka við ómerktum hrossum eftir 1.
apríl 2010


Reglugerð um einstaklingsmerkingar búfjár tók gildi
árið 2005 þar sem m.a. er kveðið á um að skyltsé að skrá og
einstaklingsmerkja öll hross eldri en 10 mánaða. Í byrjun voru hross
fædd fyrir árið 2003 undanþegin merkingarskyldu en nú hefur sú undanþága
verið felld úr gildi. Hross sem fædd eruárið 2008 og síðar skulu vera
örmerkt en frostmerki eru viðurkennd í eldri hrossum, að því gefnu að
þau séu læsileg. Á þeim 5 árum sem liðin eru frá gildistöku laganna
hefur orðið afar jákvæð þróun í einstaklingsmerkingum hrossa en betur má
ef duga skal.


Til að tryggja rekjanleika afurða, matvælaöryggi og
útflutningshagsmuni er nauðsynlegt að herða eftirfylgni með merkingum
hrossa. Eigendur hrossa bera alla ábyrgð á að hross þeirra séu skráð
ogmerkt. Ennfremur bera þeir ábyrgð á að hross sem þeir senda til
slátrunar séu ekki í sláturbannivegna lyfjameðhöndlunar. Dýralæknum er
skylt að skrá allar lyfjameðhöndlanir í gagnagrunninn WFog koma þar fram
upplýsingar um sláturfrest og sláturleyfishafar bera ábyrgð á að ómerkt
hross (ogþar af leiðandi ekki inni í lyfjaskráningakerfinu) séu ekki
notuð í afurðir sem fara til manneldis.Með vísan til framangreinds og
10. gr. laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, en þar segir
aðsláturdýr megi ekki vera haldin sjúkdómi né bera leifar lyfja eða
annarra aðskotaefna sem geti verið hættuleg heilsu neytenda, verður frá
og með 1. apríl n.k. óheimilt að láta afurðir af ómerktum hrossum fara
til manneldis. Sláturleyfishöfum verður þá skylt að framfylgja
eftirfarandi reglum:


  1. Óskráð og ómerkt hross: Ekki hægt að uppfylla kröfu um rekjanleika
    og matvælaöryggi. Afurðir fara því ekki til manneldis en má nýta í
    loðdýrafóður.
  2. Grunnskráð hross ómerkt /ólesanlegt eða merkt hross sem ekki er
    grunnskráð: Eigandi fær tækifæri til að sýna fram á eignarhald og að um
    réttan einstakling hafi verið að ræða (t.d. með því að einkenni svari
    til lýsingar í WF) enda fylgi hrossinu yfirlýsing um að svo sé og að
    hrossið hafi ekki fengið lyfjameðhöndlun undanfarna 6 mánuði ( 24 klst
    regla). Að öðrum kosti fara afurðir ekki til manneldis en má nýta í
    loðdýrafóður.
  3. Grunnskráð hross og einstaklingsmerkt: Merking sannreynd í
    sláturhúsi. Ef skemmri tími en 6 mánuðir eru frá örmerkingu skal
    hrossinu fylgja skrifleg yfirlýsing eiganda um að það hafi ekki fengið
    lyfjameðhöndlun á þeim tíma. Afurðir viðurkenndar til manneldis.
  4. Folöld yngri en 10 mánaða sem koma til slátrunar skulu merkt
    fæðingarnúmeri móður. Auðveldast er skrifa númerið á plastlímband í
    ljósum lit og festa tryggilega við fax. Ef um stóra hópa er að ræða má
    notast við hlaupandi númer enda fylgi með skrá sem tengir þau númer við
    fæðingarnúmer mæðra.


Þeim sem vilja kynna sér forsögu málsins og/eða fá nánari
upplýsingar, er bent á neðangreinda


umfjöllun:

  • Aukin eftirfylgni með lögum sem eiga að tryggja að ekki séu
    lyfjaleifar í hrossakjöti sem birtist í Bændablaðinu 12. Janúar 2010 og á
    www.mast.is 3. febrúar 2010.
  • Veraldarfengurinn viðurkenndur af Evrópusambandinu sem rafrænn
    hestapassi á www.mast.is 4.febrúar 2010.




Smella hér til að nálgast tilkynninguna