Þá er lokið Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna í hestaíþróttum árið 2009. Veðrið hélst að mestu gott en þó kom smá hitaskúr um miðjan daginn, sem er alls ólík þeirri íslensku rigningu með tilheyrandi roki sem við Íslendingar eigum að venjast. Úrslit í öllum greinum fóru fram í dag og óhætt er að segja að glæsileg tilþrif hafi sést í öllum flokkum.
Gústaf Ásgeir Hinriksson er Íslandsmeistari í fjórgangi barna á hinum
flinka Knerri frá Syðra-Skörðugili. Þeir félagar átti glæsillega
sýningu og fengu einkunnina 6,67. Enginn ógnaði sigri Rakelar Natalie
Kristinsdóttur í unglingaflokki á stóðhestinum Vígari frá Skarði en þau
hlutu hvorki meira né minna en 7,70 í einkunn. Í ungmennaflokki stóð
Camilla Petra Sigurðardóttir sig frábærlega á Kalli frá Dalvík. Þau
urðu Íslandsmeistarar eftir að hafa unnið sig upp úr B- úrslitum.
Í slaktaumatölti sigraði Agnes Hekla Árnadóttir á Öðlingi frá Langholti.
Róbert Bergmann er
Íslandsmeistari í tölti barna á hinni hreyfingamiklu Brynju frá
Bakkakoti. Töltsýning þeirra var glæsileg og einkunnin í samræmi við
það, 7,22. Rakel Natalie lék sama leikinn og í fjórgangnum en þau Vígar
sigruðu töltið af miklu öryggi með einkunnina 8, 06 sem var hæsta
einkunn sem gefin var á mótinu. Valdimar Bergstað og hinn lipri Leiknir
frá Vakursstöðum sigruðu líka örugglega í ungmennaflokki með einkunnina
7,94.
Fimmgangur unglinga var æsispennandi og munaði litlu á efstu knöpum.
Jöfn í fyrsta til öðru sæti voru Oddur Ólafsson á Litfara frá Feti sem
kom úr B- úrslitumog Ólöf Rún Guðmundsdóttir á glæsihryssunni Toppu frá
Vatnsholti en þau hlutu bæð 6,55 í einkunn. Eftir sætaröðun dómara varð
ljóst að Ólöf Rún er Íslandsmeistari í fimmgangi unglinga. Í
ungmennaflokki var einnig mjótt á mununum og voru Valdimar Bergstað og
Orion frá Lækjarbotnum og Teitur Árnason á Glað frá Brattholti í
tveimur efstu sætunum. Þegar verið var að lesa upp úrslitin var ljóst
að Valdimar var búinn að játa sig sigraðan. En þegar í ljós kom að hann
var orðinn Íslandsmeistari í fimmgangi ungmenna gat hann illa leynt
gleði sinni og tóku þeir Orion nokkur gleðihopp um völlinn. Sannarlega
einlægur fögnuður hjá þessum mikla keppnismanni.
Mótsstjórn vill
þakka keppendum fyrir drengilega keppni, dómurum fyrir fagmannlega
dómgæslu og öðru starfsfólki fyrir vel unnin störf, ekki síst þeim
fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóginn.
Lokadagur Íslandsmóts

Takk fyrir komuna í Mosfellsbæ.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn