Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Íslandsmót – Almennar upplýsingar

29. apríl 2009 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Meira um Íslandsmót á leitarstikunni vinstra megin

Hestamannafélagið Hörður býður þátttakendur og gesti velkomna á íslandsmót í hestaíþróttum  sem haldið er dagana 25. – 28 júní að Varmárbökkum félagssvæði Harðar í Mosfellsbæ.  Við vonum að gestir njóti þess sem fyrir augu ber, þátttakendum gangi vel og sýni drengilega keppni.

Keppendur eru beðnir að sýna stundvísi svo unnt sé að halda dagskrá og jafnframt eru þeir minntir á að virða reglur um upphitunarhring.  Allar breytingar sem verða á þátttöku ber að tilkynna mótstjórn með góðum fyrirvara.

Íslandsmótsnefnd Harðar þakkar styrktaraðilum mótsins fyrir þeirra framlag sem og öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem lagt hafa nefndinni lið.

Mótsstjóri:  Þórir Örn Grétarsson


Vallarstjóri:  Vilhjálmur Þorgrímsson


Starfsmannastjórn:  Gyða Á Helgadóttir


Dýralæknir mótsins:  Helgi Sigurðsson


Dómarar:

  • Svanhildur Hall
  • Kristinn Bjarni Þorvaldsson
  • Páll Briem
  • Gísli Geir Gylfason
  • Sigurbjörn Viktorsson
  • Viggó Sigursteinsson

Yfirdómari: Gylfi Geirsson


Eftirlitsdómari:  Hulda Geirsdóttir