Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Líflandsmót

13. apríl 2009 Hestamannafélagið Hörður Comments Off


Opna Líflandsmót æskulýðsnefndar Fáks verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal
sunnudaginn 19.apríl. Skráning verður í Reiðhöllinni þriðjudaginn 14.apríl milli
kl. 18 og 20. Einnig verður tekið við skráningum á sama tíma í síma 567 0100 og
897 4467. Eftir þennan tíma verður ekki tekið við skráningum. Skráningargjaldið
er kr. 2.500 á grein og einungis er leyfilegt fyrir hvern knapa að skrá einn
hest í hverja grein. Ekkert skráningargjald er fyrir polla.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
 
    * Pollaflokki (1999 og síðar): tölt og tvígangur


    * Barnaflokki:
tölt og fjórgangur


    * Unglingaflokki: tölt, fjórgangur og
fimmgangur


    * Ungmennaflokki: tölt, fjórgangur og fimmgangur
 



Æskulýðsnefnd Fáks áskilur sér rétt til að fella niður einstaka greinar
ef eki næst lágmarksþátttaka.
 
Ekki verður raðað í sæti í pollaflokki en allir pollar fá þátttökupening og
verðlaun

 
Bestu kveðjur,
 




Hilda Karen Garðarsdóttir


formaður
Æskulýðsnefndar Fáks.