Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skráning Æskan og hesturinn 2009

3. febrúar 2009 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

stelpur

 

Hin árlega stórsýning Æskan og hesturinn verður haldin í Víðidal helgina 14-15. mars nk. Grímureiðin geysivinsæla verður fyrir yngsta hópinn, sameiginlegt atriði með krökkum (10-12 ára) úr öðrum hestamannafélögum og að sjálfssögðu verður fánareiðin og félagsatriði Harðar á sínum stað.


 


Allir Harðarkrakkar sem vilja taka þátt í sýningunni þurfa að skrá sig til þátttöku. Gefa þarf upp eftirfarandi upplýsingar við skráningu:

Nafn, aldur, nafn forráðamanns, tölvupóstfang og GSM. Sendið upplýsingarnar til Hólmfríðar hofyolafs@hotmail.com, Hægt er að skrá sig til og með þriðjudagsins 17. febrúar.


 


Athugið: Öryggisins vegna þarf að velja hesta sem þola klapp og tónlist í kringum sig.


 


Æskulýðsnefndin