Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Camp sem haldinn verður í Bandaríkjunum dagana 17. – 24. júlí 2009. Búðirnar verða haldnar í Wisconsin, í um 2 klst. fjarlægð frá Chicago á búgarði sem heitir Winterhorse farm.
Dagskráin verður í grófum dráttum á þessa leið; farið verður í reiðtúr, indíanar og kúrekar koma í heimsókn, bátaferð, farið í vatnaskemmtigarð og jafnvel í smá verslunartúr.
Þátttakendur þurfa að vera á aldrinum 13 – 17 ára, á árinu, og verður gerð krafa um að þeir hafi einhverja reynslu í hestamennsku og geti gert sig skiljanleg á ensku.
Þátttökugjald er 530 – 550 € og hefur hvert land rétt til að senda 2 þátttakendur, en einnig verður biðlisti ef sæti losna. Flugfargjald er ekki innifalið í þátttökugjaldinu.
Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu LH, Engjavegi 4, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík fyrir 20. janúar 2009. Á umsókninni þarf að koma fram nafn, kennitala, heimili, í hvaða hestamannafélagi viðkomandi er og nokkrar línur um reynslu í hestamennsku.
Þegar búið verður að velja þá úr sem uppfylla skilyrðin verður dregið úr umsóknum.
FEIF Youth Camp 2009

Kveðja frá Æskulýðsnefnd Landssambandsins
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn