Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Áhugasamt og duglegt fólk óskast til stjórnar og nefndarstarfa

2. desember 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Nú fer að líða að aðalfundi félagsins og þar með nýju starfsári.  Það er margt gott og duglegt fólk sem drífur félagið áfram, en okkur vantar fleiri til að draga vagninn með okkur.  Við auglýsum því eftir áhugasömum, duglegum og ósérhlífnum Harðarfélögum til ýmissa félags- nefndar- og stjórnarstarfa.  Allt sem þarf að gera er að hafa samband við formann þeirrar nefndar sem þú hefur áhuga á að starfa í eða við Guðjon formann í síma 894 5101, eða gudjon@arkform.is

Með bestu kveðju, stjórnin.