Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Kallað eftir mótaárangri vegna viðurkenninga

16. september 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Uppskeruhátíð æskulýðsnefndar verður haldin nú í haust, dagsetning verður auglýst síðar. Þar verða afhentar viðurkenningar fyrir árangur í keppni á þessu ári og einnig verða afhent viðurkenningarskjöl fyrir knapamerki.

Veittar eru viðurkenningar fyrir eftirfarandi:

  1. Besti knapi – Viðurkenning fyrir bestan heildarárangur í keppni á keppnisárinu. Mótaárangur á öllum mótum sem viðkomandi knapi hefur keppt á ræður vali.
  2. Efnilegasti knapi – Viðurkenning fyrir besta/næstbesta árangur á innanfélagsmótum á keppnisárinu. Mótaárangur á innanfélagsmótum ræður vali.
  3. Mestar framfarir á keppnisnámskeiði – Viðurkenning frá reiðkennurum fyrir góða ástundun og miklar framfarir.
  4. Mestar framfarir á almennu reiðnámskeiði – Viðurkenning frá reiðkennara fyrir góða ástunun og miklar framfarir.

Hver knapi getur aðeins einu sinni í hverjum aldursflokki fengi tilnefningu fyrir liði 2-4

Þeir knapar sem hafa verið að keppa og vilja koma til greina við afhendingu viðurkenninga eru beðnir um að senda inn mótaárangur sinn á árinu fyrir 25. september nk. á netfangið breidafit@isholf.is

Vinsamlegast athugið að sé árangur ekki sendur inn á viðkomandi ekki möguleika á viðurkenningu.

Ækulýðsnefndin