Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Aðalfundur 2007

5. september 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Aðalfundur 8. nóvember 2007

Fundurinn haldinn í Harðarbóli

Um 35 manns mættu á fundinn.

 

  1. Formaður setur fundinn og tilnefnir Martein Magnússon sem
    fundastjóra og Sigurð  Teitsson sem
    ritara og var það samþykkt.
  2. Marteinn Magnússon tekur við fundastjórn og lýsir fundinn rétt
    boðaðann og dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
  3. Formaður Marteinn Hjaldested flytur skýrslu stjórnar. Farið
    yfir það helsta sem gerðist á árinu, reiðahöll seinkar vegna teikninga en
    á að klárast í febrúar –mars. Hitaveita er klár og verktakar eiga að byrja
    næsta sumar.
  4. Guðný Ívarsdóttir gjaldkeri kynnti reikninga félagsins. Aðeins
    kynntur en ekki lagður fyrir fundinn vegna þess að endurskoðendur gerðu
    hlutina ekki rétt, kynntir voru bráðabirgða reikningar. Lagt til að boðað
    verði til annars fundar til þess að samþyggja reikninga. Framhaldsaðalafundur
    boðaður 7 desember, borið undir fundinn sem samþykkti það.
  5. Umræða um skýslu stjórnar. Hreinn B. talaði um að reikningar
    væru aldrei réttir í 9. mánaðar uppgjöri. Marteinn H, svaraði í sambandi
    við reikningana að skekkja uppá 200 þús. hefði verið og ákveðið var að fá
    endurskoðanda til þess að laga þessa gömlu skekkju sem hefur kostað mikla
    peninga.
  6. Árgjald lagt til að félagsgjöldin verði óbreitt. Félagsgjald,
    8.500.- krónur á ári fyrir fullorðina og 3.000 krónur fyrir unglinga,
    frítt fyrir börn. Auk þess er boðið uppá hjónagjald sem er 11.000.- krónur
    fyrir hjónin og fjölskyldugjald sem er 16.000.- krónur fyrir fjölskyldu og
    öll börn undir 16. ára aldri fá frítt. Innfalið í árgjaldinu er frjáls aðgangur
    að World feng
  7. Lagabreytingar engar.
  8. Kosning Stjórnar: Guðjón Magnússon kosinn formaður, Rafn
    Jónsson kosinn í aðalstjórn, Þórir Örn Grétarsson verður varamaður og
    Ragnhildur Haraldsdóttir hættir sem varamaður. Þeir sem eru þá í stjórn
    eru Guðjón Magnússon, Guðmundur Björgvinsson, Guðný Ívarsdóttir, Ingvar
    Ingvarsson, Ólöf Guðmundsdóttir, Rafn Jónsson, Sigurður Hrinik Teitsson.
  9. Skoðunarmenn félagsins voru endurkjörnir þeir Leifur Kr.Jóhannesson
    og Birgir Hólm.
  10. Fulltrúar á þing UMSK voru kjörnir Guðjón Magnússon, Gyða Á
    Helgadóttir, Haukur Níelsson og Katrín Sif Ragnasdóttir.
  11. Fulltrúar á LH þing voru kjörnir Guðjón Magnússon, Guðmundur
    Björgvinsson, Guðný Ívarsdóttir, Ingvar Ingvarsson, Marteinn Magnússon, Ólöf
    Guðmundsdóttir, Sigurður Teitsson, Þröstur Karlsson, Þórir Örn Grétarsson.
  12. Hesthúseigendafélagið kemur með þeirra reikninga á
    framhaldsfundinn.
  13. Önnur mál.

 

Ólafur
Gunnarsson vildi vekja athygli á því að fasteignagjöld á hesthús séu að hækka
rosalega. Ný lög sem Mosfellsbær ræður ekkert um. Einnig útaf reiðahöll
stóraukinn rekstur áhyggjur af reikningum.

Hreinn Björnsson
fannst að taka ætti þetta upp LH þinginum með fasteingagjöldin.

Guðjón Magnússon
svaraði með faseignagjöldin en ríkið hefur fært hesthús í atvinnuflokk.
Bæjarstjóri og Guðjón M. munu vinna í þessu máli.

 Verið að vinna í heimsíðunni.Umræða um að
síðan væri döpur og spurning hvort hægt sé að setja inn félagatalið. Einnig
rætt um að setja inn kort af svæðinu og hver væri hvar í hverfinu.

Guðjón M. talaði
um að það að það vanti fleiri til þess að nota og skrifa á heimasíðuna. Einnig
að það sé ekki vilji að setja félagskrána á síðuna útaf misnotkun hjá
fyrirtækjum í sambandi við auglýsingar.

Marianne fór
yfir beitamál, fékk ekki beit síðasta sumar og er ásátt við beitarnefndina.
Vill að þetta verði gert opinbert og þeir sem búa í Mosó og eru félagsmenn
gangi fyrir, sættir sig ekki við þetta.

Marteinn H.
svaraði  í sambandi við beitarmálin. Það
verður að sækja um skriflega og á réttan hátt. Þrír úr beitanefnd verða að vera
viðstaddir þegar dregið er , þetta á að vera mjög gegnsætt.

Hreinn talaðu um
að hann skildi ekki afhverju menn fengju ekki beit og að við værum ekki að nýta
það beitaland sem við gætum verið að nota. t.d Stardal.

Marteinn H.
taldi að beitastykki eigi að vera nóg en ekki geta allir fengið sömu stykkin,
en allir eiga að geta fengið stykki. Hann er ánægður með störf  beitarnefndar.

Guðjón vill
Hitta hrein og fara yfir þessi beitarmál.

Kristinn ræddi
um stöðu reiðvega vegna mikilla framkvæmda, hvað er verið að gera.

Guðjón M. Fór
yfir reiðvegamál. Reynt að hafa hjáleiðir opnar, menn eru í sambandi við
Verktaka, einnig verður reynt að hafa framkvæmdir þegar menn eru ekki að ríða
út.

Marianna talaði
um námskeið í reiðhöllinni. Æskulýðsnefnd fékk það verkefni að fá Hindisvík leigða
fyrir námskeiðin sem gekk eftir.

Lólo talaði um
að hún hefði tekið inn snemma en hefði áhyggjur af drasli sem gæti verið
slysagildrur. Einnig þarf að girða grunnin fyrir reiðhöllina betur af.

Guðjón fær
verkataka til þess að girða betur.

Minna þarf á frammhaldsfundinn
í desember.

 

Marteinn Hjaldested kvaddur og þakkað fyrir
vel unnin störf og honum færð gjöf.

 

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið.