Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Æskan og hesturinn 2008

8. febrúar 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Æskan og hesturinn 2007Hin árlega stórsýning Æskan og hesturinn verður haldin í Víðidal helgina 29-30. mars nk. Grímureiðin geysivinsæla verður fyrir yngsta hópinn, sameiginlegt atriði með krökkum úr öðrum hestamannafélögum og að sjálfssögðu verður fánareiðin og félagsatriði Harðar á sínum stað. 


 

Allir Harðarkrakkar sem vilja taka þátt í sýningunni þurfa að skrá sig til þátttöku. Gefa þarf upp eftirfarandi upplýsingar við skráningu: Nafn, aldur, nafn forráðamanns, tölvupóstfang og GSM. Sendið upplýsingarnar til Ragnheiðar rt@vst.is.  Hægt er að skrá sig til og með 20. febrúar.


 


Athugið: Öryggisins vegna þarf að velja hesta sem þola klapp og tónlist í kringum sig.


 


Æskulýðsnefndin