Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Keppnisnámskeið fyrir konur og almennt reiðnámskeið.

19. janúar 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hinn þekkti hestamaður Erling Sigurðsson heldur keppnisnámskeið eingöngu ætlað konum. Námskeiðið er 8 skipti og kostar 15.000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 20.000 fyrir aðrar. Í lok námskeiðs taka konurnar þátt í hinu árlega kvennatölti Gusts.

Samhliða verður almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna. Námskeiðið er 8 skipti og kostar 15.000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 20.000 fyrir aðra. Kennt verður eftir hádegi á sunnudögum og hefjast námskeiðin 3. febrúar.

Takmarkaður fjöldi kemst að, fyrstir koma fyrstir fá.

Skráning og upplýsingar hjá Helenu Jensdóttur 699 2797 helenajens@simnet.is til og með mánudagsins 28. janúar.