Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 10.12.2007

17. janúar 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamannafélagið Hörður

 

Stjórnarfundur 10. des. 2007 kl. 18.00

 

Fundur 2

Fundarstaður: Harðarból

Fundur hófst  kl. 18.00

 

Mættir voru:

           

Guðjón Magnússon formaður                            gudjon@arkform.is

Ólöf
Guðmundsdóttir    meðstjórnandi               hestasyn@simnet.is

Sigurður
Teitsson   meðstjórnandi                      sht@verslun.is

Þórir Örn
Grétarsson    varamaður                    toti@hestar.net

 

 

1.     
Fasteignagjöld í C flokk í stað A

Búið að ræða við Ragnheiði Ríkharðsdóttur alþingismann sem gekk rösklega í
málið fyrir okkur, en eitthvað virðist þessi klaufagangur vera að vefjast fyrir
mönnum.  LH er líka að reyna að gera
eitthvað í málinu.  Er í áframhaldandi
vinnslu.

 

2.      Nýr vegur að Leirvogstungu, ábending frá framhaldsaðalfundi um að halda almennan félagsfund um
málið.  Ákveðið að byrja á því að setja
gögn um umræddan veg inn á heimasíðuna og í félagsritið sem kemur út í janúar
þannig að allir félagsmenn séu upplýstir um málið.  Þáverandi stjórn félagsins fór yfir umrædda
framkvæmd fyrir um tveim árum og var komið til móts við allar kröfur
hestamannafélagsins hvað varðar legu reiðleiða, undirgöng, brýr o.þ.h. (aðrar
en þær að hætt yrði við veginn sem vissulega var efst á óskalistanum).  Þannig var tryggt að þörfum
hestaíþróttarinnar sem slíkrar væri mætt.

 

3.      Rif á restinni af dómpallinum, fá leifi byggingaryfirvalda, GM falið að fá leifi til niðurrifs.

 

4.      Söluaðstaða fyrir heyrúllur, rætt um hvernig þessu væri best fyrir komið þar sem hlöður gerast nú æ
minni vegna lagabreytingar um hlöðustærðir. 
Ýmsir möguleikar í stöðunni en fundarmenn eru sammála um að ekki sé hægt
að opna stæði þar sem öllum sé frjálst að geyma rúllur, það hefur allstaðar
reynst illa þar sem það hefur verið reynt. Sóðaskapur og ill umgengni.  Þess í stað verði fundin staðsetning fyrir
slíka stæðu og komið upp afgirtu plani fyrir starfsemi sem síðan yrði leigð
út.  Í millitíðinni verður rætt við
bændur í nágreninu um að þeir annist slíka þjónustu fyrir félagsmenn, en
Hrísbrúarbændur hafa geymt hey fyrir einstaklinga.

 

5.      Bæta umgengni í hverfinu, áhugi er á meðal stjórnarmanna að stórbæta umhverfið í
hesthúsahverfinu.  Hesthúseigendadeildin
er þegar komin í gang og er nú verið að lagfæra og fara yfir allt svæðið, bera
í stæði og götur og snyrta til.  Í
framhaldinu verða umgengnisreglur á hesthúsasvæðinu kynntar, en þær hafa verið
til í langan tíma og eru samþykktar af bæjarstjórn Mosfellsbæjar.  Nú er kominn tími til að þeim verði
framfylgt.  Einnig kom fram að hnykkja
þarf á reiðleiðum í hverfinu, það þarf að vera opin örugg reiðleið um hverfið
án þess að menn þurfi að ríða mis stabílum hestum milli bíla, hestakerra og
flaksandi heyrúllna.  Þannig er t.d.
austasta gatan í hverfinu reiðstígur, en ekki akvegur eins og hinar göturnar.  Einnig er ætlast til að menn leggi bílum í
þar tilgerð bílastæði en ekki framan við húsin í götunum. 

 

6.      Snjóruðningur verður
á helstu reiðleiðum umhverfis hverfið í vetur, flugvallahring og leiðinni út í
fjöru.

 

7.      Landslag ehf hefur verið falið að koma með
tillögur að umhverfismótun við norðurvöllinn,
hæðasetja og koma þar fyrir áhorfendabrekkum, bílastæðum og aðstöðu fyrir
keppendur.

 

8.      Nýjar byggingalóðir í hverfinu, Landslag ehf er að vinna að tillögu um stækkun hverfisins, en hugmyndin
er að stækka það til austurs, fyrir neðan Sorpu.

 

9.      Hörður fyrirmyndarfélag, nú er að ljúka vinnu við að koma Herði í flokk með fyrirmyndarfélögum
innan ÍSÍ.  Við verðum þá annað
hestamannafélagið sem hlýtur þá viðurkenningu.

 

10.  Umhverfis og beitarnefnd, einhverjar breytingar á fyrirkomulagi beitar næst
hesthúsasvæðinu
eru yfirvofandi og verða kynntar sérstaklega á næstunni.

 

11.  Dagskráin fyrir 2008,
er orðin nánast full mótuð og verður sett inn á nýtt dagatal heimasíðu Harðar
fljótlega, auk þess sem hún verður prentuð á dagatal og sett í fyrsta
fréttabréf Harðar sem kemur væntanlega út í janúar.

 

12.  Úrtaka fyrir landsmót, ákveðið að hafa tvær úrtökur fyrir landsmót, þá fyrri dagana 27, 28 og 29
maí.  Seinni úrtakan verður svo
gæðingamótið.

 

 

Fleira var ekki
gert og fundi slitið