Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

1. Vetrarmót Öryggismiðstöðvarinar 24.02.2007.

22. febrúar 2007 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Laugardaginn 24 febrúar hefst vetrarmótaröð Harðar mótin verða eins og í fyrra þrjú talsins og verður keppt til stiga. Það er Öryggismiðstöðin sem styrkir okkur á þessu fyrsta móti og eru verðlaunin glæsileg að vanda.


Keppnin hefst kl 12.45 en skráning er í félagsheimili frá kl. 11.30 – 12.30.


Keppt verður í eftirtöldum flokkum:





Kl 12.45 pollaflokkur (ekki keppt til stiga).





1)Barnaflokkur.


2)Unglingaflokkur.


3)Ungmennaflokkur


4)Konur


5)Karlar


6)Meistaraflokkur.





Reglur um vetrarmót





1) Keppnin er riðin á stóra hringvellinum á vinstri hönd.





2) Ef fjöldi keppenda í flokki er fleiri en 12 skal skipt í hópa.





3) Hvernig skal riðið? A) Hægt tölt B) frjáls ferð.





4) Miðað er við tvo hringi hægt og tvo í frjálsri ferð dómari lengir prógram ef þurfa þykkir.





5) Úrslit eru riðin á vinstri hönd fjöldi í úrslitum er 5 -8 miðað er við sama prógram og í forkeppni og getur dómari lengt prógram ef þurfa þykkir.





6) 5 efstu fá verðlaun og stig sem gilda í heildarkeppni 3 vetrarmóta.





7) Keppendur í pollaflokki skulu teymdir.