1. Formaður setur fundinn kl. 20.10. Hann tilnefndi
Martein Magnússon sem fundarstjóra og Guðjón Magnússon sem fundarritara og var
það samþykkt einróma. Staðfest var að fundur er löglega boðaður og því verður
gengið til dagskrár samkvæmt lögum félagsins.
2. Formaður flytur skýrslu
stjórnar.
3. Halldór Guðjónsson gjaldkeri félagsins les upp rekstrarreikning
ársins 2003, en hagnaður á árinu var um 1,9 millj. Efnahagsreikningur sýnir að
eignir hafa aukist um liðlega 800.000.- frá árinu 2002. Lesið upp 9 mánaða
uppgjör rekstrar- og efnahagsreikninga ársins 2004 frá 1. janúar til 30.
september.
4. Leifur Jóhannesson félagskjörinn skoðunarmaður félagsins minnti
á hlutverk skoðunarmanna sem má ekki rugla saman við hlutverk endurskoðenda.
Hlutverk skoðunarmanna er fyrst og fremst að skoða rekninga félagsins gagnrýnum
augum og benda á það sem betur má fara en kemur ekki í stað endurskoðunar hjá
endurskoðanda.
Skoðunarmenn hafa ekki undirritað reikninga ársins 2003 þar
sem í ljós hefur komið að skekkja er í þeim. Reikningar bárust seint og því
hefur gefist fremur lítill tími til skoðunar, en þó skekkja sé í reikningum er
ljóst að rekstrarafkoma félagsinns er mjög góð og ekki er verið ásaka neinn þar
sem skekkjan er talin eiga sér bókhaldstæknilegar skýringar. Ábending til
stjórnar að gera reikninga upp fyrr á árinu þannig að góður tími sé til
yfirferðar og að bókhaldið verði fært á bókhaldsskrifstofu þar sem um mikla
nákvæmnisvinnu sé að ræða og umsvif félagsins orðin þó nokkur.
Yfirlit yfir
einn bankareikning vantar, en þeir eru 13 talsins, allir hinir 12 eru réttir.
Spurning hvort ekki sé rétt að fækka reikningum til að auðvelda yfirlit. Huga að
því hvort ekki sé hægt að fá betri ávöxtun af því fé sem geymt er á
bankareikningum
Skekkja í reikningum: Á blaðsíðu 9 kemur fram færslan:
“Leirðétting vegna fyrri ára 259.688.- “ Þessi leiðrétting hefur áhrif á sjóð,
birgðarstöðu, viðskiptaskuldir auk þess að um 46 þúsund krónu skekkja er í
dagbók gjaldkera, sem á í eðli sínu að stemma upp á eyri. Vegna þessa treysta
skoðunarmenn sér ekki til að undirrita reikninga ársins 2003.
Leifur
stingur upp á því að reikningum verði vísað aftur til stjórnar þar sem skekkjan
verði fundin og leiðrétt og eftir það skoðaðir aftur af
skoðunarmönnum.
Guðni kannast við vandamálið frá sinni tíð. Líklegt sé að
skekkjan sé þess eðlis að gjaldkeri fyrri ára hafi fært útistandandi skuld sem
tekjur í ársreikningi. Næsti gjaldkeri fái síðan skuldina greidda og færi hana
aftur sem tekjur, en átti sig ekki á því að færa hefði átt innborgunina á
viðksiptamannareikning. Þannig er færslan tvítekin og skekkja
myndast.
Ása upplýsir að búið er að breyta öllum reikningum félagsins í
Íslandsbanka í reikninga sem bera góða vexti.
Konráð ber upp fyrirspurn
hvers vegna þær birgðir sem til eru af Litlu hestabókinni séu ekki eignfærðar
sem birgðir í bókhaldi.
Hreinn spyr afhverju séu svona margir
bankareikningar í gangi
Halldór hefur ekki hugmynd af hverju reikningar
eru svona margir, en hann hefur nú þegar fækkað þeim í 5. Upplýsir einnig að enn
séu miklar birgðir til af Litlu hestabókinni þó þær séu ekki færðar til birgða í
bókhaldi.
Einar upplýsir að starf nefnda í gegnum árin hafi verið nokkuð
sjálfstætt, bæði hvað varðar fjáröflun og útgjöld. Því hafi margar nefndir haft
sérmerkta bankareikninga.
Fundarstjóri ber fram tillögu um að reikningum
verði vísað aftur til stjórnar, síðan verði haldinn framhaldsaðalfundur í
febrúar þar sem leiðréttir reikningar verði teknir fyrir ásamt reikningum ársins
2004.
Einar telur að ekki sé hægt að halda fundi áfram verði reikningar
ekki samþykktir og leggur til að fundurinn samþykki reikningana eins og þeir
eru, en skora um leið á nýja stjórn að leitast við að leiðrétta skekkjuna í
bókhaldinu.
Fundarstjóri leggur fram eftirfarandi tillögu til
atkvæðagreiðslu eftir að hafa ráðfært sig við gjaldkera og skoðunamenn
félagsins. “ Reikningar verði samþykktir með þeim fyrirvara að ný stjórn leitist
við að laga reikninga fyrir næsta aðalfund.” Samþykkt með öllum atkvæðum.
5.
Gjaldkeri leggur fram rekstraráætlun fyrir árið 2005 sem sýnir hagnað, en bendir
á að fjáröflunarnefnd var ekki starfandi á þessu ári og úr því þurfi að bæta ef
áætlanir eiga að ganga eftir.
6. Umræður um rekstraráætlun.
7. Árgjald,
tillaga stjórnar um að árgjöld verði óbreytt borin undir atkvæði. Samþykkt
einróma.
8. Lagabreytingar. Tillaga að lagabreytingu frá stjórn félagsins lög
fram. Tillagan felur í sér að aðalfundur verði haldinn í janúar til febrúar ár
hvert í stað september til október eins og nú er. Ástæða þessa er sú að þá getur
gjaldkeri hvers árs gert upp almanaksárið fyrir aðalfund á meðan það er enn í
fersku minni.
Nokkrar umræður spunnust um málið þar sem það kom meðal annars
fram að stutt væri siðan fundartíma var breytt í núverandi form og var það gert
með það í huga að ferskir stjórnendur og nýir nefndarmenn hefðu tíma til að
skipuleggja árið sem er framundan. Menn sem tækju til starfa í febrúar hefðu
hins vegar engin áhrif á starfsárið sem væri þá þegar hafið og að mestu
skipulagt af öðrum mönnum. Hugsanlegt væri að halda aðalfundinn að hausti og
kjósa í stjórn og nefndir á þeim tíma, en hafa sérstakan reikningsskilafund í
febrúar mars þar sem reikningar yrðu lagðir fram.
Eftir stutt fundarhlé þar
sem stjórnin réði ráðum sínum ákvað hún að draga tillöguna til baka.
9.
Kosningar
Fyrir fundinum liggur tillaga stjórnar þess efnis að Marteinn
Hjaltested verði kosinn formaður félagsins. Fundarmenn samþykkja það
einróma.
Tillaga stjórnar um aðalstjórn:
Guðjón
Magnússon
Guðmundur Björgvinsson
Gunnar Engilbertsson (nýr inn)
Halldór
Guðjónsson
Kolbrún Haraldsdóttir
Páll Viktorsson
Í varastjórn
verði:
Konráð Adolphsson
Oddrún Sigurðardóttir
Sigurður
Teitsson
Úr stjórninni kusu að víkja:
Guðmundur
Magnússon
Svanur Magnússon
Valdimar Kristinsson
Og eru þeim þökkuð vel
unnin störf.
Tillaga stjórnar að nýrri stjórn samþykkt einróma.
Lagt
var til að skoðunarmenn félagsins yrðu:
Leifur Jóhannesson og Birgir Hólm og
var það samþykkt einróma.
Magnús á Blikastöðum, Langar að taka upp málið “kaffisala” í
félagsheimilinu þegar fer að vora, einkum fyrir þá gesti sem leið eiga um. Þetta
hafi gefist vel hjá öðrum félögum. Hann skorar á stjórnina að taka málið
upp.
Ólafur Gunnarsson, situr í skipulags- og byggingarnefnd
Mosfellsbæjar upplýsir að á fundi nefndarinnar í gær hafi verið samþykkt að fela
Reyni Viljhjálmssyni landslagsarkitekt að gera tillögu að deiliskipulagi
svæðisins þar sem gert væri ráð fyrir nýrri reiðhöll.
Þröstur Karlsson
færir þakkir til stjórnar- og nefndarmanna og áréttar að mikilvægt sé að huga að
fjáröflun félagsins. 9 mánaða uppgjör bendir til að tap verði á rekstri
félagsins árið 2004 þó uppgjörið sýni hagnað, eftir er að færa inn afskriftir og
fleira í árslok.
Spurning hvort rétt sé að endurgera dómpallinn sem brann þar
sem notkun hans var lítil. Notkun hans sem geymslu verður hugsanlega hægt að
leysa á annan hátt, t.d. í tengslum við byggingu reiðhallar. Saknar kynbótamats
og lagði til að stjórnin skoði að stofna nefnd um hrossarækt.
Valdimar
ræðir um beitarmál. Stefnt er að því að halda almennan félagsfund um beitarmál á
nýju ári þar sem rætt verður um endurskipulagningu beitarmála næst
hesthúsahverfinu. Stefnt er að því að skipta beitarhólfum upp í smærri einingar
þannig að fleiri geti notið. Þetta gæti orðið viðkvæmt mál þar sem ákveðnir
félagsmenn hafa haft aðgang að sömu hólfum um árabil og jafnvel ræktað þau upp
sjálfir í sumum tilfellum. Því þarf að gefa góðan aðlögunartíma auk þess að
almenn sátt verður að ríkja um málið.
Það er kynbótanefnd í félaginu, en
starfaði ekki mikið á síðasta ári.
Konurnar í félaginu hafa verið að sækja á
þegar varðar léttar uppákomur í félaginu og nægir þar að nefna kvennadeildina
sem stofnuð var á síðasta ári og hélt létt mót, Langbrókarmótið. Karlmennirnir
virðast hinsvegar vera í lægð og því er lagt til að endurvekja karlrembureiðina
næsta vor.
Halldór upplýsir að aðeins hafi verið smíðatrygging á dómpalli
þar sem aldrei var hirt um að setja endanlegar tryggingar á eignina.
Tryggingafélagið hefur samþykkt að greiða 1 millj. í bætur. Þegar hafa verið
greiddar út 600 þúsund, en restin fæst ekki nema húsið verði endurbyggt en þá er
spurning hvort það sé þess virði þar sem það muni kosta mun meira en eina
milljón.
Fundarstjóri þakkar fráfarandi stjórn og biður nýja menn
velkomna.
Aðalfundur 2004
Aðalfundur Hestamannafélagsins Harðar
Haldinn í Harðarbóli þann 1.
desember 2004

Tillaga að fulltrúum félagsins á UMSK
þing:
Formaður er sjálfkjörinn
Ása Magnúsdóttir
Kolbrún
Haraldsdóttir
Oddrún Sigurðardóttir
Samþykkt einróma.
10. Önnur
mál
Marteinn Hjaltested, nýkjörinn formaður, þakkar
traustið.
Magnús á Blikastöðum, Langar að taka upp málið “kaffisala” í
félagsheimilinu þegar fer að vora, einkum fyrir þá gesti sem leið eiga um. Þetta
hafi gefist vel hjá öðrum félögum. Hann skorar á stjórnina að taka málið
upp.
Ólafur Gunnarsson, situr í skipulags- og byggingarnefnd
Mosfellsbæjar upplýsir að á fundi nefndarinnar í gær hafi verið samþykkt að fela
Reyni Viljhjálmssyni landslagsarkitekt að gera tillögu að deiliskipulagi
svæðisins þar sem gert væri ráð fyrir nýrri reiðhöll.
Þröstur Karlsson
færir þakkir til stjórnar- og nefndarmanna og áréttar að mikilvægt sé að huga að
fjáröflun félagsins. 9 mánaða uppgjör bendir til að tap verði á rekstri
félagsins árið 2004 þó uppgjörið sýni hagnað, eftir er að færa inn afskriftir og
fleira í árslok.
Spurning hvort rétt sé að endurgera dómpallinn sem brann þar
sem notkun hans var lítil. Notkun hans sem geymslu verður hugsanlega hægt að
leysa á annan hátt, t.d. í tengslum við byggingu reiðhallar. Saknar kynbótamats
og lagði til að stjórnin skoði að stofna nefnd um hrossarækt.
Valdimar
ræðir um beitarmál. Stefnt er að því að halda almennan félagsfund um beitarmál á
nýju ári þar sem rætt verður um endurskipulagningu beitarmála næst
hesthúsahverfinu. Stefnt er að því að skipta beitarhólfum upp í smærri einingar
þannig að fleiri geti notið. Þetta gæti orðið viðkvæmt mál þar sem ákveðnir
félagsmenn hafa haft aðgang að sömu hólfum um árabil og jafnvel ræktað þau upp
sjálfir í sumum tilfellum. Því þarf að gefa góðan aðlögunartíma auk þess að
almenn sátt verður að ríkja um málið.
Það er kynbótanefnd í félaginu, en
starfaði ekki mikið á síðasta ári.
Konurnar í félaginu hafa verið að sækja á
þegar varðar léttar uppákomur í félaginu og nægir þar að nefna kvennadeildina
sem stofnuð var á síðasta ári og hélt létt mót, Langbrókarmótið. Karlmennirnir
virðast hinsvegar vera í lægð og því er lagt til að endurvekja karlrembureiðina
næsta vor.
Halldór upplýsir að aðeins hafi verið smíðatrygging á dómpalli
þar sem aldrei var hirt um að setja endanlegar tryggingar á eignina.
Tryggingafélagið hefur samþykkt að greiða 1 millj. í bætur. Þegar hafa verið
greiddar út 600 þúsund, en restin fæst ekki nema húsið verði endurbyggt en þá er
spurning hvort það sé þess virði þar sem það muni kosta mun meira en eina
milljón.
Fundarstjóri þakkar fráfarandi stjórn og biður nýja menn
velkomna.
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl.22.20
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn