Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 09.11.2005

14. mars 2007 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Hestamannafélagið Hörður








Stjórnarfundur 9. nóvember
2005











Fundur hefst kl. 20.00





Mættir voru:





Guðjón
Magnússon gudjon@arkform.is


Guðmundur Björgvinsson gudmbj@simi.is


Halldór
Guðjónsson dorigud@visir.is


Konráð Adolphsson kado@internet.is


Marteinn
Hjaltested marteinn@kaupas.is


Páll Viktorsson
hestalist@simnet.is








1. Vallarsvæðið: Vallarnefndin er byrjuð á
viðhaldi vallanna. Rætt um


hversu víðtækt viðhaldið ætti að vera, en almennt
er ástand vallanna mjög slæmt. Ákveðið að fara í að gera við báða hringvellina
og skeiðbrautina og skipta út löngu ónýtum girðingum við þá.Undanfarið hefur
efri hringvöllurinn nánast eingöngu verið notaður og þá bæði fyrir íþrótta- og
gæðingakeppnir, þó hann henti ekki vel sem íþróttavöllur. Neðri völlurinn er
hins vegar sérhannaður íþróttavöllur, en hann er ekkert notaður þar sem ekki er
hægt að koma áhorfendum í bílum að honum. Til að gera báðum keppnisgreinunum
jafnt til hæfis var ákveðið að ráðast í að fylla upp umhverfis neðri völlinn og
búa til bílastæði umhverfis hann. Einnig verður farið í að ræsa vatn framhjá
skeiðbrautinni, fjarlægja rústirnar af dómpallinum sem brann og grafa skurð og
fylla með mold og skít fyrir trjábelti sem sett verður meðfram skeiðbrautinni
næsta vor. Bæjarfélagið hefur þegar veitt 1,5 milljónum til þessara aðgerða og
gefið vilyrði fyrir meiru á næsta ári. Páll Viktorsson leggur fram
kostnaðaráætlun fyrir aðgerðina:





Vikur 1.000.000.-


Girðingar
1.200.000.-


Heflun 100.000.-


Dómpallur rifinn 80.000.-


Skurður með
skeiðbraut 250.000.-


Lagfæra efri völlinn og ræsta með skeiðbraut
420.000.-


Neðri völlur með girðingum 500.000.-


Rör og ræsi vegna drenræsis
150.000.-





Samtals 3.700.000.-





2. Keppnisnefnd falið að athuga hvað
kostar að kaupa dómpall á hjólum, eða


gám sem hægt yrði að flytja á milli
vallanna. Áætlað verð er um 350.000.-


3. Búið er að semja um smíði á rásbásum
sem við eigum að fá afhenta fyrir


11. febrúar á næsta ári.


4. Ákveiðið að
halda nefndarfund með öllum nefndum laugardaginn 3.desember


5. Ákveðið var að
vera með fræðslufundi og morgunmat alla laugardagsmorgna


í vetur og
veitingasölu alla laugardaga eftir 1. apríl og reyna að hvetja fólk til að ríða
til okkar um helgar.


6. Ákveðið var að setja upp símastaura til að binda
hesta í við báða gafla


Harðarbóls. Það er hálf skammarlegt að ekki sé hægt að
binda hest við félagsheimilið.


7. Reiðhallarmálin kynnt, en nú virðist vera
að glæðast yfir fjármögnun


reiðhallarinnar. Loforð liggur fyrir um að
bæjarfélagið komi að málinu með okkur með allt að helming kostnaðar, en ríkið
með restina. Ragneiður bæjarstjóri, Marteinn og Guðjón fóru á fund Guðna
Ágústssonar landbúnaðarráðherra í vikunni og föluðust eftir samstarfi. Guðni var
mjög jákvæður, enda var Konráð búinn að undirbúa málið þeim megin frá.



Framhaldið er síðan að ræða við menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra um
stuðning við málið. Rætt var um hugsanleg rekstrarform á höllinni, en sú hlið er
lítur að starfi vegna þjálfunar fatlaðra þarf að vera í höndum fagaðila.


8.
Þegar fjármögnun liggur fyrir mun stjórnin boða til auka aðalfundar og


falast
eftir umboði til að ganga til samninga vegna fjármögnunar, hönnunar og byggingar
reiðhallarinnar.


9. Við höfum lagt mikla áherslu á að fullbyggð reiðhöllin
verði skuldlaus,


og munum leggja til að sett verði lagaákvæði í lög félagsins
um að óheimilt verði að veðsetja hana nema með samþykki 2/3 hluta atkvæða
aðalfundar Hestamannafélagsins Harðar.














Fleira var ekki gert
og fundi slitið.