1. Holræsagjald, hesthúseigendadeild
Harðar hefur lagt fram stjórnsýslukæru vegna innheimtu holræsagjalda af
hesthúseigendum, en eins og kunnugt er er ekkert holræsi í hverfinu og því
óheimilt að innheimta holræsagjöld.
2. Íþróttavellir, Við höfum sótt um
fjárveitingu til að lagfæra íþróttavellina okkar. Ákveðið var að lagfæra vellina
til bráðabyrgða fyrir komandi mót, en stefna á að laga þá betur í sumar.
Girðingar verða einnig lagfærðar til bráðabirgða.
3. Fjármálin, útgjöld eru
mikil hjá félaginu, en innkoman ekki að sama skapi. Reynt hefur verið að safna
sponsorum, en lítið gengið. Þó hefur frést að eithvað er í sjónmáli, auk þess að
félagsgjöldin eru farin að skila sér.
4. Firmakeppni verður um helgina og er
undirbúningur kominn vel af stað og söfnun styrktaraðila hafin.
5. Reiðhöll,
Marteinn Magnússon fyrrverandi formaður Harðar hefur varpað fram þeirri hugmynd
að stækka fyrirhugaða reiðhöll þannig að hún rúmi löglegan 200 til 250 metra
keppnisvöll. Málið er athyglisvert, en deiliskipulagi er að ljúka eins og
kunnugt er. Þó getur verið að slík höll rúmist innan þess deiliskipulags. Málið
verður skoðað og rætt frekar.
6. Fjölskyldudagurinn, Ákveðið var að slá
fjölskyldudeginum og Leirugleðinni saman í einn alsherjar hátíðisdag. Konráð
tekur að sér yfirstjórn hátíðarinnar með hjálp valinna manna úr öðrum nefndum.
Tóti og félagar munu þó sjá um sjálfa gleðina á Leirunum.
7. Þolreið í
Laxnes, Póri í Laxnesi mun standa fyrir þolreið frá Víðidal í Laxnes þann 21.
maí. Ákveðið að Hörður taki að sér að aðstoða við keppnina Mosfellsbæjar megin.
Gætum fengið unglingana okkar með í málið. Guðjóni falið að sjá um
framkvæmdina.
Stjórnarfundur 27.04.2005
Hestamannafélagið Hörður
Stjórnarfundur 27. apríl
2005
Fundur hefst kl. 19.00
Mættir voru:
Guðjón
Magnússon gudjon@arkform.is
Kolbrún Haraldsdóttir
kolbrunh@talnet.is
Konráð Adolphsson kado@internet.is
Marteinn Hjaltested
leahelga@mi.is
Oddrún Ýr Sigurðardóttir oddrun@husdyragardur.is
Páll
Viktorsson hestalist@simnet.is
1. Holræsagjald, hesthúseigendadeild
Harðar hefur lagt fram stjórnsýslukæru vegna innheimtu holræsagjalda af
hesthúseigendum, en eins og kunnugt er er ekkert holræsi í hverfinu og því
óheimilt að innheimta holræsagjöld.
2. Íþróttavellir, Við höfum sótt um
fjárveitingu til að lagfæra íþróttavellina okkar. Ákveðið var að lagfæra vellina
til bráðabyrgða fyrir komandi mót, en stefna á að laga þá betur í sumar.
Girðingar verða einnig lagfærðar til bráðabirgða.
3. Fjármálin, útgjöld eru
mikil hjá félaginu, en innkoman ekki að sama skapi. Reynt hefur verið að safna
sponsorum, en lítið gengið. Þó hefur frést að eithvað er í sjónmáli, auk þess að
félagsgjöldin eru farin að skila sér.
4. Firmakeppni verður um helgina og er
undirbúningur kominn vel af stað og söfnun styrktaraðila hafin.
5. Reiðhöll,
Marteinn Magnússon fyrrverandi formaður Harðar hefur varpað fram þeirri hugmynd
að stækka fyrirhugaða reiðhöll þannig að hún rúmi löglegan 200 til 250 metra
keppnisvöll. Málið er athyglisvert, en deiliskipulagi er að ljúka eins og
kunnugt er. Þó getur verið að slík höll rúmist innan þess deiliskipulags. Málið
verður skoðað og rætt frekar.
6. Fjölskyldudagurinn, Ákveðið var að slá
fjölskyldudeginum og Leirugleðinni saman í einn alsherjar hátíðisdag. Konráð
tekur að sér yfirstjórn hátíðarinnar með hjálp valinna manna úr öðrum nefndum.
Tóti og félagar munu þó sjá um sjálfa gleðina á Leirunum.
7. Þolreið í
Laxnes, Póri í Laxnesi mun standa fyrir þolreið frá Víðidal í Laxnes þann 21.
maí. Ákveðið að Hörður taki að sér að aðstoða við keppnina Mosfellsbæjar megin.
Gætum fengið unglingana okkar með í málið. Guðjóni falið að sjá um
framkvæmdina.
Fleira var ekki gert og fundi slitið.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn