Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skráning á seinni hluta námskeiða hjá Sigrúnu

30. mars 2006 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Föstudaginn 31. mars kl 18 verður skráning á seinni hluta námskeiða hjá Sigrúnu Sig. í Harðarbóli….

Athugið að um takmarkaðan fjölda plássa er að ræða þar sem við höfum úr minni tíma að spila núna. Hverjum hópi er kennt tvisvar í viku, alls 8 skipti, á þriðjudögum og fimmtudögum og byrja fyrstu námskeiðin þriðjudaginn 11. apríl.

Við höfum þann háttin á að yngstu börnin verði kl 16, þe ca 5 -8 ára ca ,

mið aldur kl 17 , þe 8 – 11 ára

og elstu börnin kl 18.

Ekki er hægt að verða við séróskum nú

Ekki er um eiginleg framhaldsnámskeið að ræða.

Sigrúnu er í sjálfu sér óþarfi að kynna en svona fyrir þá sem eru að koma í fyrsta skipti þá hefur Sigrún verið með reiðnámskeið hjá Herði í fjölda ára og náð frábærum árangri með krakkana okkar. Mörg hafa stigið sín fyrstu skref í hestamennskunni undir hennar leiðsögn og eru í dag toppklassa hestamenn.

Börn skuldlausra félagsmanna ganga fyrir og einungis er tekið við skráningum gegn staðgreiðslu á staðnum (ekki er tekið við skráningum í síma). Námskeiðsgjald er 8.000 kr á hvern nemanda. Þar sem um takmarkaðan fjölda plássa er að ræða verður sá háttur hafður á að “fyrstur kemur – fyrstur fær” en þó háð því að félagsgjöld hafi verið greidd. Skráning hefst kl. 18.00 og líkur kl. 19.00.

Bestu kveðjur,

Æskulýðsnefnd Harðar