Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Frá fræðslunefnd: Almenn reiðnámskeið að hefjast

26. janúar 2004 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Almenn reiðnámskeið fyrir fullorðna munu hefjast uppúr mánaðarmótum. Fræðslunefnd hefur fengið tvo reiðkennara úr röðum Harðarfélaga, Barböru Mayer og Friðdóru Friðriksdóttur til að kenna á námskeiðunum,

sem verða haldin á mánudags og miðvikudagskvöldum í febrúar og mars. Skráning er hafin hjá fræðslunefnd í síma 566 6988 á kvöldin eða á hinni@itn.is.