Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

FORELDRAFUNDUR – UPPSKERUHÁTÍÐ – SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ

13. janúar 2004 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Kæru foreldrar Harðarbarna.

Þriðjudagskvöldið 20. janúar nk. verður haldinn foreldrafundur, uppskeruhátíð og skráning á námskeið. Kvöldið byrjar kl. 19:00 á skráningu á námskeið.

Athugið að ekki verður tekið við skráningu á námskeið eftir að þau byrja og það verður að borga fyrir námskeiðin við skráningu. Við tökum á móti kreditkortum og símgreiðslum. Kl. 20:00 hefst foreldrafundurinn.

Dagskrá foreldrafundar er eftirfarandi:

Dagskrá vetrarins kynnt.
Æskan og hesturinn, kynning á sýningunni og framlagi félagsins.
Uppskeruhátíð, kynntir verða besti og efnilegasti knapinn í flokki barna, unglinga og ungmenna.
Fyrirspurnir og umræður.
Kaffi og kökur í boði æskulýðsnefndar.

Við hvetjum alla áhugasama foreldra til að mæta. Meðfylgjandi er dagskrá vetrarins sem gott er að hengja upp á áberandi stað til að muna eftir einstökum uppákomum.

Munið eftir heimasíðu félagsins www.hordur.net og athugið að æskulýðsnefndin á sér síðu þar sem dagskráin er uppfærð á hverjum tíma.

Með bestu kveðju,
Æskulýðsnefnd.