Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skráning á námskeið – uppskeruhátíð og foreldrafundur

10. janúar 2005 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Miðvikudaginn 19. janúar verður skráð á námskeið sem haldin verða fyrripart vetrar. Að venju verður hinn sívinsæli reiðkennari Sigrún Sigurðardóttir hjá okkur og mun hún kenna á þriðjudögum og fimmtudögum í vetur. Sigrún

hefur verið fastur kennari hér í Herði í fjölmörg ár og námskeiðin hjá henni eru yfirleitt fullbókuð. Þeir sem vilja tryggja sér aðgang þurfa því að hafa hraðar hendur og mæta þann 19. til skráningar.
Á miðvikudögum verða svo Friðdóra Friðriksdóttir og Oddrún Sigurðardóttir reiðkennarar, og Harðarfélagar, með spennandi námskeið. Kennt verður skv. knapamerkjakerfinu og er það spennandi nýjung hjá félaginu. Á þessum námskeiðum verður lögð áhersla á að undirbúa knapa og hesta undir keppnisnámskeið sem þær stöllur verða með seinna í vetur. Þeir krakkar sem skrá sig á þetta námsekið ganga fyrir á seinna námskeiðið. Ath. námskeiðin eru fyrir börn – unglinga og ungmenni. Hér er því ákaflega spennandi námskeið á ferð og því öruggast að tryggja sér pláss með því að mæta í skráningu – miðvikudaginn 19. janúar kl. 19.00