Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Styrkur frá Umhverfisráðuneytinu

8. maí 2003 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, veitti Hestamannafélaginu Herði 200 þúsund króna styrk.

Styrkurinn er vegna uppgræðslustarfs í hinu svokallaða “fyrirheitna landi”. Verður því fé varið í dreifingu á búfjáráburði sem fluttur var á svæðið í vetur. Eru þetta sannarlega góð tíðindi og mikil hvatning við starfið þar efra.