Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Sýnikennsla fyrir unglinga og ungmenni!

27. janúar 2003 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Atli Guðmundsson verður með sýnikennslu tvö mánudagskvöld í febrúar ef næg þátttaka fæst. Lágmarksþátttaka er 10 manns svo námskeiðið verði haldið. Atli mun leggja áherslu á að sýna mýkjandi, losandi og safnandi æfingar sem eru heppilegur grunnur svona í upphafi vetrar.

Þátttakendur prófa æfingarnar eftir fyrra skiptið og geta síðan spurt Atla í seinni tímanum og fengið nánari leiðbeiningar ef eitthvað hefur ekki gengið upp. Ath. foreldrar velkomnir með!! Verð fyrir bæði skiptin er kr.1000 pr. einstakling. Skráning og móttaka greiðslu verður í Harðarbóli þriðjudaginn 28. janúar frá klukkan 18-20. Nánari upplýsingar veitir Bryndís, netfang: leiftur@hotmail.com eða s. 6618102.