Heldur var þungbúið þegar keppni hófst í morgun á fimmgangi ungmenna. Hann hékk þó þurr sem betur fer og þeir fáu áhorfendur sem mættir voru í morgunsárið fengu að líta góðar sýningar og marga glæsilega skeiðspretti.
Valdimar Bergstað
hélt uppteknum hætti og reið sig í efsta sætið í ungmennaflokknum á
Oríon frá Lækjarbotnum. Í unglingaflokki stendur Arnar Bjarki
Sigurðarson hins vegar efstu á Gammi frá Skíðbakka 3.
Þegar
B- úrslit í fjórgangi barna hófust var komið glaða sólskin og glaðnaði
þá heldur yfir brekkunni. Heldur fjölgaði áhorfendum og hestar og
knapar sýndu sitt allra besta. Harðarfélaginn Páll Jökull Þorsteinsson
reið sig með glæsibrag í efsta sætið í fjórgangnum og það gerðu einnig
Arnar Logi Lúthersson í unglingaflokki og Camilla Petra Sigurðardóttir
í ungmennaflokki.
Í
töltinu voru það Róbert Bergmann í barnaflokki, Arnar Bjarki
Sigurðarson í unglingaflokki og Sigríður Sjöfn Ingvarsdóttir sem
tryggðu sér sæti í A-úrslitum.
Að
loknum kvöldverði fór svo fram keppni í 100m skeiði. Mörgum finnst
þetta ein skemmtilegasta keppnisgreinin og skeiðáhugamenn fengu þarna
algjöra veislu fyrir augað. Svo fór að Ragnar Bragi Sveinsson sigraði á
einum besta tíma ársins 7,37 sek.
Framundan
er síðasti og jafnframt mest spennandi dagurinn á Íslandsmótinu þegar
fram fara B- úrslit í fimmgangi unglinga og ungmenna og síðan A-úrslit
í öllum greinum. Miðað við þær einkunnir sem sáust í forkeppni má búast
við skemmtilegri og spennandi keppni á morgun. Við hvetjum
hestaunnendur til að fjölmenna í Mosfellsbæinn og styðja við bakið á
þessum ungu framtíðarknöpum. Keppni hefst klukkan 10.
Þriðji dagur á Íslandsmóti

Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn