Dagskrá Íslandsmótsins hófst í morgun með keppni í fimi í blíðskaparveðri. Nokkrir höfðu á orði að nú mætti alveg auka vegsemd fimikeppninnar og jafnvel þyngja æfingarnar í ljósi þess að flestir yngri knapar hafa stundað knapamerkjanám og hafa því vald á mun flóknari æfingum en keppnin býður upp á í dag. Íslandsmeistari í barnaflokki varð Birna Ósk Ólafsdóttir á Vísi frá Efri-Hömrum, í unglingaflokki stóð Arna Ýr Guðnadóttir efst á Þrótti frá Fróni efst en Guðlaug Jóna Matthíasdóttir sigraði ungmennaflokkinn á hestinum Zorro frá Álfhólum.
Um hádegisbil
braust sólin fram úr skýjunumog þá hófst keppni í tölti unglinga. Rakel
Nathalie Kristinsdóttir átti aðra stórkostlega sýningu á Vígari frá
Skarði og leiðir töltkeppnina með einkunnina 7,57. Í barnaflokki
stendur Gústaf Ásgeir Hinriksson efstur á Knörr frá Knörr frá
Syðra-Skörðugili og Valdimar Bergstað er efstur í ungmennaflokki á
Leikni frá Vakursstöðum.
Í
slaktaumatölti áttu Agnes Hekla Árnadóttir og Öðlingur frá Langholti
frábæra sýningu og verma fyrsta sætið verðskuldað eftir forkeppni.
Agnes Hekla gerði sér lítið fyrir skömmu síðar og varð Íslandsmeistari
í gæðingaskeiði í unglingaflokki. Valdimar Bergstað fylgdi einnig eftir
góðum árangri í töltinu og varð Íslandsmeistari í gæðingaskeiði
ungmenna á Orion frá Lækjarbotnum.
Heilt á litið
hefur mótið gengið mjög vel fyrir sig, tímasetningar hafa staðist með
ágætum og margar glæsilegar sýningar hafa glatt augu áhorfenda sem voru
vel vakandi í brekkunni í sólinni í dag og klöppuðu óspart eða þeyttu
bílflautur þegar við átti.
Á morgun laugardag, hefst keppni í fimmgangi ungmenna klukkan 10 og síðdegis byrja svo fyrstu B-úrslitin.
Annar dagur á Íslandsmóti

Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn