Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Tilmæli vegna Íslandsmóts

23. júní 2009 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Harðarfélagar eru vinsamlegast beðnir um að fjarlægja hestakerrur sínar af kerrustæðum félagsins og koma þeim fyrir annars staðar, ef unnt er, meðan á Íslandsmóti stendur eða dagana 25. – 28. júní n.k.,  svo mótsgestir eigi hægara um vik að komast að með sínar kerrur. Einnig þætti okkur vænt um að allir hjálpist að við að hafa eins snyrtilegt í kringum okkur og hægt er.

Með góðri kveðju,

Mótsstjórn