Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Bolir til styrktar landsliðinu í hestaíþróttum

29. maí 2009 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Lífland og LH hafa tekið höndum
saman og hrundið af stað fjáröflun fyrir landsliðið okkar sem keppir í Sviss í
ágúst.  Bolir hafa verið hannaðir og prentuð á þá númer sem dregið verður úr
þegar landsliðið verður formlega kynnt í júlí.

Vinningarnir eru hinir
glæsilegustu m.a flugferð til Evrópu með Iceland Air, einkatímar hjá
reiðkennurum, fataúttektir í Líflandi að verðmæti 20.000, fóður, hestabækur,
bíómiðar, reiðtygi og ótal margt fleira.  Sala á bolunum hefst á
Reykjavíkurmeistaramóti Fáks sem fram fer nú um helgina.  Bolirnir verða meðal
annars seldir í verslunum Líflands í Reykjavík og á Akureyri, í versluninni
Baldvin og Þorvaldur á Selfossi og Knapanum í Borgarnesi.

Kveðja, starfsfólk
Líflands