Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Námskeið fullorðinna hefjast aftur

9. apríl 2009 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Nú eru reiðnámskeið fyrir fullorðna að fara af stað aftur.

Almennt reiðnámskeið.

Kennt á sunnudögum og hefst 19. apríl, lýkur 7. júní. Kennari er Súsanna Ólafsdóttir. Námskeið sem miðar að því að gera hestinn betri, að bæta ásetu og stjórnun, grunn fimiæfingar. Verð er 12.000 krónur 8 skipti fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 18.000 fyrir aðra. Skráning hjá Helenu helenajens@simnet.is  og í síma 699 2797 til og með 16. apríl. Þeir sem eru á biðlista nú þegar eru beðnir um að staðfesta þátttöku.

Skeiðnámskeið.

Kennt á virkum dögum og byrjar í maí, kennt úti á velli. Kennari er Reynir Örn Pálmason. Skiptist í einn bóklegan tíma og fjóra verklega. Ætlað þeim sem hafa áhuga á að ríða skeið og byggja hestinn sinn rétt upp til þess. Verð 7000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 10.000 fyrir aðra. Skráning hjá Margréti margret@vistor.is  og í síma 824 7059. Haft verður samband við þá sem þegar voru skráðir.