Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

FEIF Youth camp 2009

22. desember 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Camp
sem haldinn verður í Bandaríkjunum dagana 17. – 24. júlí 2009. Búðirnar verða
haldnar í Wisconsin, í um 2 klst. fjarlægð frá Chigaco á búgarði sem heitir
Winterhorse farm.

Dagskráin verður í grófum dráttum á þessa leið; farið verður í
reiðtúr, indíanar og kúrekar koma í heimsókn, bátaferð, farið í vatnaskemmtigarð
og jafnvel í smá verslunartúr.

Þátttakendur þurfa að vera á aldrinum 13 – 17 ára, á árinu, og verður gerð
krafa um að þeir hafi einhverja reynslu í hestamennsku og geti gert sig
skiljanleg á ensku.

Þátttökugjald er 530 – 550 € og hefur hvert land rétt til að senda 2
þátttakendur, en einnig verður biðlisti ef sæti losna. Flugfargjald er ekki
innifalið í þátttökugjaldinu.

Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu LH, Engjavegi 4, Íþróttamiðstöðinni
Laugardal, 104 Reykjavík fyrir 20. janúar 2009. Á umsókninni þarf að koma fram
nafn, kennitala, heimili, í hvaða hestamannafélagi viðkomandi er og nokkrar
línur um reynslu í hestamennsku.





Þegar búið verður að velja þá úr sem
uppfylla skilyrðin verður dregið úr umsóknum.

Jólakveðja frá Æskulýðsnefnd Landssambandsins