Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

FEIF Youth Cup 2008

30. nóvember 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

 

Í sumar var ég
svo heppin að vera valin í unglingalandsliðið í hestaíþróttum sem keppti á Feif
Youth Cup 2008 sem fór fram í Brunnadern í Sviss þar sem heimsmeistaramótið
verður næsta sumar.




Image

Við vorum 9 í íslenska liðinu og okkur gekk mjög vel, áttum
þátttakendur í úrslitum í flestum greinum.

Image


  

Við fengum hesta að láni og ég fékk
mjög skemmtilega fimmgangsmeri sem heitir Idunn vom Rütihof. Mér gekk bara
ágætlega sérstaklega í ljósi þess að ég hafði aldrei keppt í fimmgangsgreinum
áður. Greinarnar sem ég keppti í voru fimmgangur, slaktaumatölt, þrautabraut og
100m skeið. Best gekk mér í slaktaumatölti en þar var ég í B-úrslitum og svo
lenti ég í 8. Sæti í skeiði, 12. Sæti í fimmgangi og 14. Sæti í þrautabraut.
Alls voru 72 keppendur frá 12 löndum sem svo var skipt í 6-7 manna alþjóðleg
lið. Ég kynntist ekkert smá mörgum skemmtilegum krökkum sem að ég held ennþá
sambandi við mörg hver.

Þetta var án efa ein
skemmtilegasta lífsreynsla sem ég á nokkurn tíma eftir að upplifa og vil ég
þakka Hestamannafélaginu Herði og Eignamiðlun Mosfellsbæ sem styrktu mig til
ferðarinnar. Ég vil einnig hvetja krakka sem hafa áhuga á að fara til útlanda
að keppa í hestaíþróttum að fylgjast með þegar næst verður auglýst eftir
umsóknum.

Takk kærlega
fyrir mig
J

María Gyða
Pétursdóttir