Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 14. apríl 2008

20. nóvember 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Stjórnarfundur 14. apríl. 2008 kl. 18.00

 

Fundur 6

Fundarstaður: Harðarból

Fundur hófst  kl. 18.00

 

Mættir voru:

 

Guðjón Magnússon                                         8945101          gudjon@arkform.is

Guðmundur
Björgvinsson
                              8586421          gudmbj@simi.is

Guðný Ívarsdóttir                                           8997052          gudnyi@simnet.is

Ingvar Ingvarsson                                           8212801          ingvar.ingvarsson@hgmos.is

Ólöf
Guðmundsdóttir
                                     8980247          hestasyn@simnet.is

Sigurður Teitsson                                            8965400          sht@verslun.is




  1. Staða reiðhallarmála

Enn er
verið að vinna að hönnun reiðhallarinnar, teikningum hefur verið skilað inn til
Byggingafulltrúa, en hann gerði athugasemdir sem verkfræðingur er nú að
leiðrétta, framkvæmdir eru því enn í biðstöðu. 
Rætt um það hvort rétt væri að slíta samningi við verktakann og leita
eftir öðrum til að ljúka verkinu. 
Niðurstaðan var sú að það er líklega ekki hægt nema þá að byggja mun
minni reiðhöll þar sem við munum ekki fá sambærileg verð annarstaðar frá.  Það er því áfram stefnt að því að ljúka
byggingunni með núverandi verktaka.

 

  1. Staða fjármála

Yfirfarin
staða fjármála með gjaldkera og er staðan góð.

 

  1. Félagsgjöld

Búið er að
senda út greiðsluseðla fyrir árið í ár. 
Enn og aftur varð ruglingur á sumum árgjöldum og stafar það fyrst og
fremst af því hvernig hjóna og fjölskyldugjöldin eru byggð upp, en það er mjög
mikil vinna að halda utanum þetta fyrirkomulag. 
Við munum því leggja til á næsta aðalfundi að árgjöldin verði einfölduð
á þann hátt að unglingar og ungmenni greiði ákveðið gjald og fullorðnir greiði eitt
fast gjald á mann.  Þetta er hliðstætt
því sem gert er í Fáki, en þeir hafa líka gefist upp á flóknu
félagsgjaldamunstri.

 

  1. Átak í hreinlætis og
    umgengnismálum í samstarfi við hesthúseigendadeild

Fundað var með embættismönnum Mosfellsbæjar um umhverfismál í
hesthúsahverfinu.  Fundurinn var mjög
jákvæður og munum við njóta aðstoðar þeirra við útfærsluna.  Bréf sem hesthúseigendafélagið sendir út
ásamt umgengnisreglum er fullgert og verður sent út á næstu dögum.  GM hefur kannað möguleika á að geyma hey til
skemmri tíma hjá bændum í nágreninu og hefur náð samkomulagi við Andrés á
Hrísbrú.  Þeir sem þurfa að geyma hey
geta því sett sig í samband við hann.

 

  1. Tunguvegur, kynning á
    fyrirhuguðu vegstæði og framtíðar reiðleiðum

Stjórnarmenn Harðar, hesthúseigendafélag og reiðveganefnd voru kölluð til
kynningarfundar hjá Mosfellsbæ þar sem farið var yfir tillögur að svokölluðum
Tunguvegi.  Árið 2005 var haldinn
kynningarfundur með félaginu og fyrirhugað vegstæði kynnt.  Þá voru verulegir ágallar á fyrirkomulagi
reiðleiða til og frá hverfinu.  Þáverandi
stjórn og reiðveganefnd gerðu kröfu um að það yrði lagfært.  Á þeim tillögum sem þarna voru kynntar var
búið að koma til móts við allar okkar athugasemdir og gott betur.  Samþykkt að setja inn link á heimasíðuna
þannig að félagsmenn eigi auðvelt með að skoða tillöguna.

 

  1. Aðstaða á Landsmóti

Ákveðið að
ST sækti um 20 til 30 beitarhólf fyrir keppnishesta á landsmóti.

 

  1. Breyting á
    aðalfundartíma

Rætt var
hvort rétt væri að breyta aðalfundartíma félagsins fram í janúar.  Þá er fleira fólk á svæðinu og reikningsárið
gæti þá verið almanaksárið.  Verður
kannað nánar og tekið fyrir á næsta aðalfundi.

 

  1. Önnur mál

Hestamannafélagið Adam

Nýtt hestamannafélag hefur verið stofnað á Kjalarnesi.  Í skilgreiningu LH á starfssvæði Harðar er
Herði ætlað Mosfellsbær, Kjalarnes og Kjós. 
Það er mjög óvenjulegt að LH heimili stofnun nýrra félaga á starfssvæðum
annarra og í öllu falli furðulegt að slíkt skuli gert án samráðs við félag sem
er starfandi fyrir á svæðinu.  Fundarmenn
eru sammála um að senda LH bréf með ósk um skýringar og árétta að Hörður mun
áfram starfa í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós.

 

Móttaka Fáks og Gusts,

Fákur kemur í heimsókn þann 1. Maí og Gustur nokkrum dögum síðar.  Samþykkt að fela kvennadeild félagsins að sjá
um veisluföng í samráði við GB.

 

Keppnisnúmer

Kaupa þarf ný keppnisnúmer, ST tekur málið að sér.

 

Karlakvöld

Hestamannafélagið Hörður féll frá því að halda karlakvöld í ár vegna
gagnrýni sem ákveðið atriði á slíku kvöldi fékk í fyrra.  Engu að síður héldu áhugasamir félagar
einkasamkvæmi til að styrkja reiðvegagerð á svæðinu og söfnuðu þar verulegum
fjármunum sem afhentir voru gjaldkera félagsins.

 

Fleira var ekki
gert og fundi slitið

 

 

Verkefnalisti stjórnar

 

  1. Verklýsingar fyrir stjórn og nefndir                                        GM,
    + allir
  2. Lýsing á flugvallarhring                                                          GM
    +Bjarni Leirv.tungu
  3. Færa upplýsingatöflu upp í Dal                                              RJ
  4. Annað fréttablað Harðar                                                         RJ

 

 

Verkefnalisti lokið

 

  1. Mótadagar, festa mótadaga                                                    JJ
    og ÞÖG       Lokið
  2. Uppgjörsmál, aukaaðalfundur 6.nóv.kl 20.00                         GÍ                    Lokið
  3. Uppgjör 2006                                                                          GÍ                    Lokið
  4. Lagfæra upplýsingatöflu og setja nýja upp í
    dal                     GM  RJ 
    ST     Frestað
  5. Rekstur Harðarbóls, ákveða fyrirkomulag á
    næsta ári            GB                  Lokið
  6. Dagatal, koma því í framkvæmd                                            ST                    Lokið
  7. Fasteignagjöld á hesthús, ræða við Ragnheiði
    Ríkharðsd.     GM                  RR
  8. Rif á restinni af dómpallinum, fá leifi
    byggingaryfirvalda     GM                  Lokið
  9. Beitarmál, fjölga beitarstykkjum, ræða við
    Valdimar ÓG                  Lokið
  10. Fréttabréf í janúar                                                                   GM                  Lokið
  11. Félagatal, koma því í lag                                                         GÍ                    Lokið
  12. Félagatal                                                                                  GÍ                    Lokið
  13. Bikar og skjöldur fyrir árshátíð                                               GM                  Lokið
  14. Heygeymslusvæði á Harðarsvæðinu                                       ÓG  GM          Lokið
  15. Lagfæra upplýsingatöflu                                                         GM
    +Keli        Lokið
  16. Átak í umhverfis og umgengnismálum                                   GM  ÓG          1.áf.lokið

 

 

Tengiliðir við nefndir

 

Fræðslunefnd                                      RJ

Beitar- og umhverfisnefnd                  ÓG

Æskulýðsnefnd                                   ÓG og ÞÖG

Reiðveganefnd                                    RJ

Reiðhallarnefnd                                  GM

Ferðanefnd                                          II

Fjáröflunarnefnd                                 ST

Mótanefnd                                          JI


Vallarnefnd                                         JI


Skemmtinefnd, árshátíðarnefnd         GM

Deild
hesthúseigenda                          ÓG

Heimasíða og
útgáfa félagsrits            RJ


Harðarból, rekstur                               GB

Harðarból,
útleiga                               GB

 

 

Fundartímar stjórnar

 

Fastir
fundartímar eru einu sinni í mánuði kl. 18.00 á neðangreindum dögum,
aukafundartímar verða boðaðir sérstaklega ef þörf þykir kl. 18.00 á
neðangreindum dögum.

 

10. desember  Fastur
fundartími

14. janúar       Fastur
fundartími

28. janúar        Aukafundartími

11. febrúar     Fastur
fundartími

25. febrúar       Aukafundartími

10. mars          Fastur
fundartími

31. mars           Aukafundartími

14. apríl          Fastur
fundartími

28. apríl           Aukafundartími

5. maí              Fastur
fundartími

26. maí                        Aukafundartími

9. júní             Fastur
fundatími