Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur 11. febrúar 2008

20. nóvember 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off




Stjórnarfundur 11. feb. 2008 kl. 18.00

Fundur 4

Fundarstaður: Harðarból

Fundur hófst  kl. 18.00

 

Mættir voru:

Guðjón Magnússon                                         8945101          gudjon@arkform.is

Guðný Ívarsdóttir                                           8997052          gudnyi@simnet.is

Ingvar Ingvarsson                                           8212801          ingvar.ingvarsson@hgmos.is

Ólöf
Guðmundsdóttir
                                     8980247          hestasyn@simnet.is

Sigurður Teitsson                                            8965400          sht@verslun.is


  1. Upplýsing
    flugvallarhrings og viðbótarreiðleiðir

Kynnt var staða mála með viðbótar reiðleiðir við flugvallarhringinn, en auk
þess stendur til að lýsa hann upp fyrir næsta vetur.  Málið er í skoðun hjá bænum og verður stikaðar
út nýjar reiðleiðir strax og frost fer úr jörðu.  Samþykkt að halda þessu verkefni áfram.

 

  1. Fjáröflun

Fjáröflun er í fullum gangi og verið að semja við helstu
styrktaraðila.  Tillaga um að fá einhvern
fagmann til að selja auglýsingar og afla styrkja gegn prósentum, einkum með
tilliti til þess að reiðhöllin rís á næstunni. 
Samþykkt að kanna málið við Birnu.

 

  1. Staða reiðhallarmála

Nú lítur
loksins út fyrir að reiðhallarmálin séu að komast á skrið.  Aðalverktakinn hefur verið í vandræðum með að
ná gögnum frá undirverktaka sínum en hefur nú leyst hann frá skildum sínum og
fengið annan til að annast þennan verkþátt. 
Sá lofar að skila verkinu fljótt og vel og ætti þá að vera hægt að halda
áfram með undirstöður reiðhallarinnar.

 

  1. Reiðleiðakort

Reiðveganefnd
vinnur nú að gerð reiðvegakorts af öllum Mosfellsbæ, en þetta er sama vinna og
hin hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa verið að gera.  Kort voru lögð til af Mosfellsbæ
endurgjaldslaust, og reiðveganefndin skráir leiðirnar í sjálfboðavinnu en kaupa
þarf vinnu við að teikna leiðirnar upp og er sú vinna unnin af Landslagi ehf,
en sú stofa hefur verið að deiliskipuleggja stækkun á hesthúsahverfinu á
svæðinu við Sorpu.  Áætlaður kostnaður
vegna þessa er um 500 þús. kr. Samþykkt einróma.

 

  1. Samningur við Mosfellsbæ
    vegna æskulýðsstarfs og afreksmannasjóð.

Kynntir
samningar sem verið er að gera við Mosfellsbæ um æskulýðsstarfið og
afreksmannastarfið, en þessir samningar verða til þess að nánast tvöfalda þá
styrki sem félagið fær frá Mosfellsbæ á næstu 4 árum.  Samþykkt einróma.

Einnig var
rætt um að koma afreksmannamálunum í farveg, en fram að þessu hafa þeir sem
komnir eru úr ungmennaflokki þurft að sjá um sig algjörlega sjálfir og fá litla
aðstoð frá félaginu.

 

  1. Kennslumál
    fræðslunefndar, takmarkaðir tímar í reiðhöll

Þar sem
við höfum aukið æskulýðsstarfið gríðarlega er notkun reiðhallarinnar nánast
fullnýtt af æskulýðsnefndinni.  Þó hefur
tekist að koma fyrir námskeiðum fyrir fullorðna, þó þau séu vissulega ekki í
þeim mæli sem við hefðum óskað.  Það
stendur þó til bóta á næsta ári.

 

  1. Bókhald og utanumhald
    fjármála frá degi til dags.

Verið er
að leggja á það áherslu að bókhald sé fært frá degi til dags þannig að það
nýtist sem stjórntæki en ekki bara sem söguleg staðreynd á aðalfundum. GÍ er að
ljúka við bókhald ársins 2007 og fer í beinu framhaldi af því í bókhald 2008.  Greiðsluseðlar verða sendir út um leið og
rétt félagatal liggur fyrir.

 

  1. Íþróttamót Harðar 2008
    – fyrsta Glitnismótið í mótaröð

LH hefur
boðið Herði að sjá um fyrsta Glitnismótið í mótaröð sem hefst hér hjá okkur með
íþróttamóti Harðar, annað mótið verður svo Reykjavíkurmeistaramótið og þriðja
og síðasta Íslandsmótið í sumar.  Glitnir
leggur til verðlaunagripi fyrir mótin. 
Samþykkt einróma.

 

  1. Útgáfa félagsrits

Útgáfu félagsrits verði hraðað eins og hægt er, en textinn er að mestu
tilbúinn, þó vantar myndir af Súsönnu og Halldóri.  GÍ er að ljúka við að koma félagatalinu í lag
og í framhaldi af því verður blaðið sett, prentað og póstlagt hjá
prentsmiðjunni Viðey.

 

  1. Þolreið í Laxnes

Lögð fyrir tillaga um að Hörður taki að sér að halda þolreiðarkeppnina
Laxnes Icelandair á Íslandi.  Þessi
keppni er nú haldin á nær öllum norðurlöndunum og Þýskalandi auk Íslands.  Leiðin sem riðin hefur verið er frá Víðidal í
Laxnes.  Hugsanlegt er að
hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu sendi lið til keppninnar.  Útfært nánar síðar í samvinnu við ferðanefnd.
 Samþykkt einróma.

 

  1. Bikar fyrir íþróttamann
    Harðar

Fram að þessu hefur íþróttamaður Harðar fengið nafnið sitt grafið í skjöld
og farandbikar.  Þetta fyrirkomulag er
þungt í vöfum þar sem „innheimta“ þarf bæði bikar og skjöld fyrir hverja
árshátíð.  Skjöldurinn tapaðist fyrir
nokkrum árum og var leitað mikið að honum og lágu ýmsir undir grun um að hafa
tínt honum.  Hann kom svo í leitirnar um
daginn og var þá á verðlaunabikar hillunni í Harðarbóli!!!!  Það er því lagt til að íþróttamanni Harðar
verði afhentur áletraður bikar til eignar í framtíðinni.  Nöfnin verði áfram grafin í skjöldinn á meðan
pláss leifir, en hann verði varðveittur í Harðarbóli.  Samþykkt einróma.

 

  1. Viðurkenning fyrir
    íþróttamann Mosfellsbæjar

Rætt var
hvort ekki væri rétt að heiðra Halldór Guðjónsson sérstaklega á árshátíð
félagsins fyrir þann frábæra árangur að vera kjörinn íþróttamaður
Mosfellsbæjar.  Ákveðið að leggja til við
árshátíðarnefnd að láta grafa í hestastyttu áletrun sem segði: Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2007 Halldór
Guðjónsson  viðurkenning frá félögunum í
hestamannafélaginu Herði.

 

 

Fleira var ekki
gert og fundi slitið

 

 

Verkefnalisti stjórnar

 

  1. Beitarmál, fjölga beitarstykkjum, ræða við
    Valdimar ÓG
  2. Fréttabréf í janúar                                                                   RJ
  3. Félagatal, koma því í lag                                                         GÍ
  4. Verklýsingar fyrir stjórn og nefndir                                        GM,
    + allir
  5. Lýsing á flugvallarhring                                                          GM
    +Bjarni Leirv.tungu
  6. Heygeymslusvæði á Harðarsvæðinu                                       ÓG  GM
  7. Lagfæra upplýsingatöflu                                                         GM
    +Keli
  8. Bikar og skjöldur fyrir árshátíð                                               GM
  9. Félagatal                                                                                  GÍ

 

 

Verkefnalisti lokið

 

  1. Mótadagar, festa mótadaga                                                    JJ
    og ÞÖG       Lokið
  2. Uppgjörsmál, aukaaðalfundur 6.nóv.kl 20.00                         GÍ                    Lokið
  3. Uppgjör 2006                                                                          GÍ                    Lokið
  4. Lagfæra upplýsingatöflu og setja nýja upp í
    dal                     GM  RJ 
    ST     Frestað
  5. Rekstur Harðarbóls, ákveða fyrirkomulag á
    næsta ári            GB                  Lokið
  6. Dagatal, koma því í framkvæmd                                            ST                    Lokið
  7. Fasteignagjöld á hesthús, ræða við Ragnheiði
    Ríkharðsd.     GM                  RR
  8. Rif á restinni af dómpallinum, fá leifi
    byggingaryfirvalda     GM                  Lokið

 

 

Tengiliðir við nefndir

 

Fræðslunefnd                                      RJ

Beitar- og umhverfisnefnd                  ÓG

Æskulýðsnefnd                                   ÓG og ÞÖG

Reiðveganefnd                                    RJ

Reiðhallarnefnd                                  GM

Ferðanefnd                                          II

Fjáröflunarnefnd                                 ST

Mótanefnd                                          JI


Vallarnefnd                                         JI


Skemmtinefnd, árshátíðarnefnd         GM

Deild
hesthúseigenda                          ÓG

Heimasíða og
útgáfa félagsrits            RJ


Harðarból, rekstur                               GB

Harðarból,
útleiga                               GB

 

 

Fundartímar stjórnar

 

Fastir
fundartímar eru einu sinni í mánuði kl. 18.00 á neðangreindum dögum,
aukafundartímar verða boðaðir sérstaklega ef þörf þykir kl. 18.00 á
neðangreindum dögum.

 

10. desember  Fastur
fundartími

14. janúar       Fastur
fundartími

28. janúar        Aukafundartími

11. febrúar     Fastur
fundartími

25. febrúar       Aukafundartími

10. mars          Fastur
fundartími

31. mars           Aukafundartími

14. apríl          Fastur
fundartími

28. apríl           Aukafundartími

5. maí              Fastur
fundartími

26. maí                        Aukafundartími

9. júní             Fastur
fundatími