Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Félagsjakkar

15. október 2008 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Gustarar vilja skylda alla knapa á mótum sem haldin eru á vegum LH að klæðast
félagsbúningi þess félags sem keppt er fyrir. Félagsjakkinn undirstriki að
knapinn sé fulltrúi félags innan Landssambands hestamannafélaga.

Í greinargerð með tillögu sem Gustur leggur fyrir 56. Landsþing LH segir að
of mikið sé um að knapar klæðist búningum sem tengjast ekki þeirra félagi. Þessi
þróun sé ekki til góðs. Eðlilegt sé að knapar klæðist félagsbúningi og
undirstriki þannig mikilvægi hestamannafélaganna.